Þýskaland á barmi efnahagshruns

Þýskaland er núna í „alvarlegustu efnahagskreppu“ í sögu landsins að sögn Alice Weidel, leiðtoga AfD.

Fjöldi gjaldþrota í Þýskalandi eykst gríðarlega samkvæmt Die Welt. Á síðasta ári var fjöldi gjaldþrota í hámarki á 20 ára tímabili. Þetta er vegna margra ára stöðnunar, segir hagfræðingur.

Alice Weidel, einn af flokksformönnum Valkosts fyrir Þýskalands Alternative für Deutschland AfD, gengur svo langt að fullyrða að þetta sé alvarlegasta kreppan í sögu landsins. Hún skrifar á X:

„Sambandslýðveldið er í alvarlegustu efnahagskreppu í sögu landsins. Þrátt fyrir þetta neitar Merz-stjórnin að framkvæma nauðsynlega stefnubreytingu. Því verður aðeins hægt að ná því fram með AfD.“

Að sögn Al Mayadeen segir hún við blaðamenn að þetta sé „flóðbylgja gjaldþrota“ og „hrun þýska hagkerfisins.“ Farið sé úr hámarki gjaldþrota yfir í nýtt hámark gjaldþrota.

Hagfræðingurinn Micael Hamberg segir í fjármálaþætti Swebbtv að þróun Þýskalands sé harmleikur. Þýskaland er leiðandi útflutningsþjóð í heiminum og hjartað í ESB. Micael segir:

„Það er ofar skilningi mínum að búið er gjörsamlega að eyðileggja Þýskaland. Líka Svíþjóð þegar Umhverfisflokknum var leyft að stöðva kjarnorkuverin okkar. Við höfum ekki haft neinn Trump til að stöðva þessa geðveiki í Evrópu.”

Fara efst á síðu