
Jóhannes Loftsson, verkfræðingur, frumkvöðull og formaður Frjálshyggjufélagsins og Ábyrgrar Framtíðar ritar yfirleitt prýðilegar greinar um hin ýmsu mál. Hann hefur ritað töluvert um Covid hneykslið og nýlega skrifaði hann eftirfarandi um lögleysuna á Íslandi:
5000 mannár af frelsisskerðingu án dóms og laga
Aldrei hefur frelsi Íslendinga verið skert eins mikið og í Covid. Í maí 2020 var samanlögð frelsisskerðing vegna fyrstu smitbylgjunnar orðin 800 mannár. Í janúar 2022 áður en yfirvöld gáfust upp á geggjuninni voru 20000 manns samtímis í sóttkví eða einangrun.
Heildartími frelsissviptinga vegna covid 2020-2022 er því líklega á stærðargráðunni 5000 mannár eða álíka og samanlögð afköst íslenska fangelsiskerfisins síðustu 50 ár. Aðeins um 5% reyndust smitaðir þannig að 95% sátu “saklausir” inni. Stærsta atvinnugrein landsins var lokað að mestu, þúsundir misstu vinnuna og margir misstu fyrirtækin sín. Þúsund milljarðar töpuðust úr hagkerfinu og það fé kemur aldrei aftur. Eftir sitjum við enn með afleiðingarnar, verðbólguna og allt sem því fylgir.
… og til hvers var þetta svo?
Aldrei í sögunni hefur íslenska ríkið farið jafn miklar offarir gegn réttindum Íslendinga og ávinningur var enginn. Allir smituðust og engum var bjargað því dánartíðni hérlendis var engu betri en þar sem minna var gert. Tilgangsleysið var algjört, nema þá kannski fyrir lyfjasala sem græddu á tá og fingri.
En hvernig gat þetta gerst?
Á stjórnarskráin ekki að verja mannréttindi okkar, frelsi okkar og atvinnufrelsi? Ekki í landi þar sem gerandinn fær að njóta alls vafans.
Samkvæmt stjórnarskrá má aðeins skerða frelsi með heimild í lögum og áfrýjunarúrræði (~24klst). En í sóttvarnarlögunum 2020 var búin til hjáleið og sagt að heilbrigðisráðherra gæti gefið út “reglur” um sóttvarnir. Engin umfjöllun á Alþingi, ekkert aðhald og enginn ábyrgur.
Hægt var að refsa óæskilegu fólki (eins og óbólusettum) með harðari skerðingu og verðlauna hlýðni við yfirvöld eftir hentisemi. Hlýddu Víði eða við refsum þér. Taktu sprautuna eða við refsum þér.
Þegar kom að áfrýjunarúrræðuinu var þetta dómsmál ansi sérstakt. Landlæknisembætti beið með úrskurðinn sinn þar til á 12. degi sóttkvíar (af 14), þannig að áfrýjunarúrræðið varð sjálfkrafa óvirkt.
Réttur ríkisins til að drepa án dóms og laga
Ein meginröksemd verjanda ríkisins fyrir réttlætingu 14 daga sóttkvírefsingar fyrir óbólusetta var að hinum óbólusetta stóð til boða mildara úrræðis: Bólusetning. Þá yrði refsingin aðeins 5 dagar.
En hvernig gat slíkt talist mildara úrræði?
Þessi yfirlýsing er dæmigerð um blekkingar yfirvalda. Í bóluefnasamningunum skrifuðu yfirvöld upp á að skaðsemi bóluefnanna væri óþekkt og bóluefnaherferðin var fyrir vikið lyfjatilraun. Þessu héldu yfirvöld leyndu frá almenningi.
Þegar byrja átti að bólusetja börn í skólum í ágúst 2021 fengu foreldrar bréf þar sem sagt var að bóluefnin væru með “markaðsleyfi”. Þessi yfirlýsing var lygi því evrópska lyfjastofnunin gaf bóluefnunum eingöngu “skilyrt markaðsleyfi” sem eingöngu er gefið fyrir neyðarnotkun vanprófaðra lyfja þegar engin önnur meðferð er til.
Þegar vistmenn elliheimila fóru að deyja strax eftir fyrstu sprautu tilkynnti landlæknir að ekkert væri óeðlilegt við þessi andlát samkvæmt íslenskri rannsókn. Gögn Hagstofunnar sýndu hins vegar 20% umframandlát strax eftir sprautu og norsk rannsókn sýndi skýr tengsl við covid-sprauturnar. Íslenska rannsóknin sleppti hins vegar öllum krufningum og var þannig hönnuð til að geta ekki fundið neitt.
Þegar hjartavöðvabólgutifellin fóru að koma fram eftir sprautu, tók það landlækni 6 mánuði að byrja að vara fólk við. Aðvörunin kom ekki fyrr en eftir að allir fullorðnir höfðu þegið sprautu. Yfirhylmingin hélt áfram því þegar í ljós kom að annað af tveimur börnum sem fyrst greindust með hjartavöðvabólgu var barn hjartalæknis með sérþekkingu á þessum sjúkdómi.
Hjartavöðvabólgan var því líklega mun algengari en haldið var fram en yfirvöld ákváðu samt að vara ekki við því og héldu sprautuherferðinni ótrauð áfram á börnunum. Síðari rannsóknir hafa sýnt að vægt hjartavöðvabólguviðbragð verður í um 3% sprautaðra. Mögulega hafa mörg hundruð börn því fengið slíka milda útgáfu af þessum hræðilega sjúkdómi.
Bólusetningartölfræðin er síðan vægast sagt skelfileg. Yfir 6000 aukaverkanir voru tilkynntar og opinber gögn sýna að samanlög fækkun fæðinga og fjölgun andláta 2022 var um 900 manns. Frjósemi þjóðarinn féll, lífaldur féll og framundan blasir við krabbameinsfaraldur og faraldur alls kyns dularfullra sjúkdóma sem rekja má til sprautanna á einn eða annan hátt.
Með því að kalla bólusetningu mildandi aðgerð og reyna að þvinga fólk í sprautu á sama tíma og skaðsemi sprautanna er falin jafngildir það í raun því að landlæknir var að taka sér vald yfir lífi og dauða. Landlæknir stýrði síðan sjálfur öllum rannsóknum á sprautuskaða og þurfti því lítið að óttast að ákvarðanir hans yrðu rengdar.
