Bakkakotsmálið: Af hverju eru afbrotamennirnir ekki dregnir sýnilega fyrir dóm?

Þáttarstjórnandinn Þórhallur Gunnarsson fyrir miðju á mynd fékk þau Jóhann Bjarna Kolbeinsson fréttamann Kveiks til vinstri og Berghildi Erlu Bernharðsdóttur fréttamann á Sýn til hægri til að ræða Bakkakotsmálið. (Skjáskot YouTube-Lyklavöldin).

Aðsend grein

Konráð Pálmason skrifar:

Ég var að horfa á myndskeið með umræðuþætti um Bakkakotsmálið (sjá Youtbe að neðan). Þokkalega góður þáttur. Það er þó furðulegt að þetta ágæta fólk minntist ekkert á þá leið sem ætti að fara. Lítið fréttist um að gerendur eru látnir sæta ábyrgð.

Það virðist ekki vera mikill hvati hjá kynferðisafbrotamönnum að halda aftur af sér. Sjáið hvað er að gerast í Bakkakotsmálinu, það er enginn sem ber ábyrgð á neinu. Enginn fær dóm sem sýndur er öðrum til viðvörunar. Rannsóknarnefndir koma að öllum líkindum með tillögur um að fjölga í nefndum og kallað verði eftir auknum fjárframlögum.

Bragi Guðbrandsson ætti að sæta sérstakri rannsókn

Bragi Guðbrandsson

Bragi Guðbrandsson, sem ekkert man þegar að er spurður ætti nú að sæta sérstakri rannsókn fyrir að stinga upplýsingum um barnaníð undir stól. Barna og fjölskyldustofa er skilgetið afkvæmi áðurnefnds Braga. Hann setti þetta apparat á stofn sem er skammstafað BOFS, Barna og Fjölskyldustofa sem virðist vera algjörlega úti á þekju, heyrist ekki neitt frá því stofnana skrýmsli.

Athyglisvert er að þegar kíkt er á þá stofnun þá kemur í ljós að í upphafi árs 2024 var starfsmannafjöldinn tæplega 100 manns: stjórar, sérfræðingar og fólk með aðra stórtitla, væntanlega til að geta mjólkað út hærri laun. Þegar kíkt er á málið þá er hægt að telja á fingrum annarrar handar fjölda karlmanna í æðstu stöðum af þessu 100 manna starfsliði.

Nær eintómar kerlingar ráða á þessum bæ

Laun, launatengd gjöld og starfsmannakostnaður var árið 2024 kr. 1.988.210.000 (Rétt tæpir 2 miljarðar). Laun og launatengd gjöld eru lang stærsti einstaki útgjaldaliðurinn eða um 72–73% af heildarrekstrarkostnaði stofnunarinnar.

Fjölgun starfsfólks: Starfsfólk BOFS var fleira en nokkru sinni fyrr á árinu 2024 og voru 169 manns skráðir á launaskrá í árslok 2024. Ég legg til að dómsmálaráðuneytið setji saman hóp vaskra manna sem fær það verkefni að rannsaka BOFS ofaní grunninn. Loka tímabundið öllum skrifstofum, yfirtaka öll tölvukerfi og fara yfir alla tölvupósta. Þar með er hægt að komast að að raun um hvað starfsfólk stofnunarinnar vissi eða átti að vita. Hvað var gert í viðkomandi máli. Þetta ætti ekki að vera stórt verkefni á öld gervigreindar.

Starfsmenn sem hylma yfir afbrot gegn börnum þurfa að sæta ábyrgð

Ef og þegar upp kemst að starfsmaður hafi fengið upplýsingar um að tilkynning um vanrækslu barns eða barna hafi komið á þeirra borð og ekkert hafi verið gert í málinu, þá ber að reka viðkomandi úr starfi og kæra fyrir vanrækslu í starfi. Sannist vanrækslan verði viðkomandi sakfelldur og dæmdur til refsingar.

Þetta kallast að draga menn, – og í þessu tilfelli fleiri konur en menn, til ábyrgðar. Ég er hræddur um að þá verði ekki fleiri málum stungið undir stól á BOFS-bænum. Komi hins vegar í ljós að allt liðið hjá BOFS sé strangheiðarlegt og með hreinan skjöld, þá verði hópurinn sendur á Bessastaði og veitt orðu fyrir vel unnin störf.