Börn nýtt til mannsdrápa eru nýjasta víglínan í skipulagðri glæpastarfsemi í Evrópu. Vestur-Evrópa glímir við vaxandi glæpatíðni og börn fara ekki varhluta af áhrifum þessarar þróunar. Æðstu embættismenn löggæslu vara nú við þessari vaxandi – og óhugnanlegu – þróun þar sem ólögráða börn eru „ráðin og mötuð á netinu af glæpagengjum til að fremja hryllilega glæpi“.
Smellið hér til að sjá myndband.
ABC News greinir frá:
„Þetta er eins konar ódýrt kerfi þar sem hægt er að panta sér morðingja að eigin ósk,“ sagði Catherine De Bolle, fv. framkvæmdastjóri Europol, lögreglu ESB, í viðtali við ABC News. Að hennar sögn á sér stað umfangsmikil þróun þar sem ofbeldi er orðið að þjónustu sem boðin er fram „á iðnaðarskala“.
„Núna með notkun gervigreindar, nýrrar tækni og þeirri staðreynd að svo margt ungt fólk er á stafrænum miðlum, þá er þetta orðið himnaríki fyrir glæpasamtök,“ sagði De Bolle. „Þetta veldur okkur verulegum áhyggjum.“ De Bolle segir að glæpanet þekki engin landamæri — og hið stafræna umhverfi sé sömuleiðis landamæralaust.
Yfirvöld vara við vaxandi fyrirbæri sem nefnt hefur verið „ofbeldisþjónusta“ (violence as a service), þar sem glæpagengi nýta sér möguleika internetsins í síauknum mæli.
„Yfirvöld segja að þetta sé í raun aðeins nútímaútgáfa af því hvernig glæpasamtök finna grunlaus ungmenni til að vinna skítverkin fyrir sig: þau halda sig á leikjasíðum og í skilaboðaforritum og leita þar að börnum allt niður í 13 ára aldur til að ráða til sín. Niðurstaðan er sú að börn verða fótgönguliðar glæpasamtaka, ráðin sem leigumorðingjar, og verða bæði gerendur afbrota og fórnarlömb glæpamanna.
Þróunin hefur valdið evrópskum löggæsluyfirvöldum svo miklum áhyggjum að Europol stofnaði sérstakan starfshóp á síðasta ári til að takast á við vandann. Hópurinn nefnist Grimm Task Force — kenndur við Grimm-bræður og myrkar, varnaðarorðakenndar ævintýrasögur þeirra — og beinist sérstaklega að fyrirbærinu „ofbeldisþjónusta“ og ráðningu ungra gerenda inn í alvarlega og skipulagða glæpastarfsemi.“
