Í nýrri könnun Maskínu fyrir DV, Dagblaðið Vísir, segjast 44,5% ætla að segja já í ESB-kosningunum 29. ágúst. 39,4% segjast ætla að segja nei og 14,6% eru óviss. Sé einungis tekið tillit til svara með annað hvort já eða nei, er 53,1% fyrir já en 46,9% fyrir nei. Könnunin fór fram dagana 2. – 11. júní og voru svarendur 1.856 talsins, þar af tóku 1.558 afstöðu.

Mikill munur er á viðhorfi fólks í Reykjavík og nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur og annarra staða á landsbyggðinni. Þannig segjast 59% aðspurðra í Reykjavík ætla að segja já og 56% í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur. Harðastir Nei sinnar eru á Austurlandi en 71,6% aðspurðra þaðan ætla að segja nei. Meirihluti aðspurðra á Vesturlandi og Vestfjörðum, Norðurlandi, Austurlandi og Suðurlandi og Reykjanes segjast ætla að segja nei.
Háskólasamfélagið í þéttbýli vill að Ísland gangi í ESB

Það er því ljóst að fylgjendur ESB er að finna í þéttbýli og þá meðal hámenntaðra, þar sem 60,6% fólks með háskólapróf ætlar að segja já miðað við fjölda háskólamenntaðra sem tóku þátt í könnuninni. Meira en helmingur þeirra sem lokið hafa grunn og framhaldsskólanámi ætlar að segja nei samkvæmt könnuninni. Samkvæmt þessari könnun er landsbyggðin á móti umsókn Íslands að ESB en höfuðborgarsvæðið er fylgjandi umsókn Íslands að ESB. Langskólagengnir, – akademían, vilja ganga í sambandið á meðan þeir sem hafa minni menntun og þá minni möguleika á opinberum störfum eru á móti umsókn Íslands að ESB. Má því segja að könnunin gefi þá mynd að verkafólk og bændur séu á móti inngöngu Íslands í ESB en háskólamenntaðir í þéttbýli vilji að Ísland gangi í ESB.
ESB – verkefni vinstri manna

Þegar litið er til stjórnmálaskoðana gefur könnunin skýrar vísbendingar innan ramma áreiðanleika könnunarinnar. Meirihluti þátttakenda sem tilheyra Viðreisn, Samfylkingu, Pírötum, Sósíalistaflokknum og Flokki fólksins vilja að Ísland gangi með í ESB. Meirihluti þátttakenda sem tilheyra Miðflokknum, Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum vilja að Ísland standi fyrir utan ESB. Umsókn Íslands til ESB er því – eins og fyrr – sósíalískt verkefni vinstri manna sem vilja fórna sjálfsákvörðunarrétti sínum og þjóðarinnar fyrir það eitt að Ísland verði meðlimur ESB.
Háskólamenntaðir standa fyrir alls kyns furðulegum hugmyndum og samfélagslegum tilraunum eins og þvingaða fólksflutninga og blöndun þjóða og kynþátta, að til séu fleiri en tvö kyn, að koldíoxíð sé eitur og svo framvegis. Vegferð stjórnmálamanna sem hafa framfylgt þessum kenningum má líkja við stjórnendur hriplegs skips sem sigla ofan í ölduna svo öruggt sé að skipið sökki og allir um borð geti farist í sameiginlegu sjálfsmorði.
Sjálfsmorðsvegferð ESB tekin upp á Íslandi
Þessi könnun Maskínu fyrir DV gefur skýrt til kynna að hámenntaðir trúa meira á framabraut innan ESB og alþjóðlegra stofnana eins og SÞ og WEF en á Íslandi í dag. Íslenska hagkerfið megnar ekki að þenja ríkisbáknið endalaust áfram svo allir háskólamenntaðir fái störf hjá hinu opinbera. Að ESB er sósíalistískt verkefni í stíl samyrkjubúskapar gömlu Sovétríkjanna sést best á þeirri tilraunastarfsemi að reyna að minnka fátækt í heiminum með því að flytja hana inn til ESB. Það er sams konar lausn og sænskir kratar leggja til. Systurflokkur Samfylkingarinnar vill nauðungarflytja íbúa fátækrahverfa í Stokkhólmi til efnaðra sveitarfélaga þar sem þá mun hamingjusamur jöfnuður skapast að þeirra sögn.
Lausn vinstri manna á efnahagsvanda er að hækka stöðugt skatta á fyrirtækjum og efnafólki. Að skattar hamli nýsköpun, athafnasemi og atvinnusköpun hefur verið líkt við að hlaða lóðum utan á hlaupara til að hann nái fyrr í mark. Allir vita og skilja að aukin þyngd á hlauparann mun einungis hægja á hlaupum hans og gera markið óraunhæft og ómögulegt að ná.
Íslenska ríkisstjórnin leikur þann ljóta leik að blekkja Íslendinga um þessar kvaðir ESB og framfylgir sjálf sjálfsmorðsstefnu sífellt hærri skatta á atvinnulífið. Það er slæmt ef henni hefur tekist að sá fræjum öfundssýki innan háskólasamfélagsins og meðal almennings sem kennir duglegum sjómönnum og útgerðarmönnum um öll þau mistök sem ríkisstjórnin sjálf stendur fyrir
Þessi skoðanakönnun DV bendir því miður til að svo sé.
