Barack Obama kom að stofnun bandarískra lífrannsóknastofa í Úkraínu sem unnu með sérlega hættulega sýkla

Sunnudaginn 6. mars 2022 birti rússneska fréttastofan RIA Novosti skjöl sem hún fullyrti að sýndu fram á að Úkraína hefði unnið að „lífvopnum“ nálægt landamærum Rússlands. RIA Novosti sakaði Bandaríkin um að hafa fyrirskipað Úkraínu að eyða líffræðilegum sýnum og sýklum áður en innrás Rússa hófst.

Rússland birti skjöl sem sýndu að Úkraína vann að þróun lífvopna nálægt rússnesku landamærunum — þar á meðal miltisbrandi og plágu (Anthrax and Plague)— og að Pentagon hafi fyrirskipað að þeim yrði eytt, sem brýtur gegn 1. grein samnings Sameinuðu þjóðanna um bann við lífvopnum. — Þetta voru rannsóknastofur fjármagnaðar af Bandaríkjunum.

Heilbrigðisráðuneyti Úkraínu fyrirskipaði að líffræðilegum sýnum og sýklum skyldi eytt í minnisblaði dagsettu 24. febrúar.

Rússland birti einnig lista yfir þá sýkla sem það fullyrti að væru geymdir á rannsóknastofunni til rannsókna og prófana. Á listanum voru meðal annars salmonellubakteríur og E. coli-bakteríur.

Uppfærsla: Við nánari yfirferð kom í ljós að miltisbrandur og plága voru ekki tilgreind í skjölunum, eins og rússnesk stjórnvöld höfðu haldið fram. Hins vegar var rannsóknastofa í Odesa í Úkraínu, fjármögnuð af Bandaríkjunum, að rannsaka miltisbrand og plágu samkvæmt fréttaþætti Tucker Carlson Tonight.

CannCon á heiðurinn af því að hafa fyrst greint frá rannsóknastofunum sem fjármagnaðar voru af Bandaríkjunum þann 1. mars.

Núna vitum við einnig hver fjármagnaði úkraínsku lífrannsóknastofurnar. Það var varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna. Skjal frá bandaríska sendiráðinu, sem hafði verið fjarlægt af internetinu, fannst í skjalasafni Wayback Machine.

Skjalið sýnir að varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna veitti úkraínskum greiningar- og lífrannsóknastofum fjárframlög.

Hér er annað skjal sem hefur verið fjarlægt af internetinu og fjallar um fjármögnun varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna á dýralæknisfræðilegri lífrannsóknastofu.

Að minnsta kosti tíu skjöl benda til þess að varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna hafi fjármagnað úkraínsku lífrannsóknastofurnar.

Natalie Winters hjá The National Pulse greindi frá því í mars 2022 að tengsl væru á milli Barack Obama og rannsóknastofanna sem fjallað var um í Úkraínu.

Vefgrein sem hafði verið fjarlægð en The National Pulse endurheimti segir að fyrrverandi forsetinn Barack Obama hafi átt frumkvæði að samkomulagi sem leiddi til byggingar lífrannsóknastofa í Úkraínu sem unnu með „sérlega hættulegum sýklum“.

Fréttin birtist sama dag og Victoria Nuland sagði í bandaríska öldungadeildinni að bandarísk stjórnvöld hefðu áhyggjur af því að líffræðilegar rannsóknastofur gætu fallið í hendur Rússa vegna átakanna í Austur-Evrópu.

Greinin „Lífrannsóknarstofur opnaðar í Úkraínu, Biolab Opens in Ukraine, sem upphaflega var birt 18. júní 2010, lýsir því hvernig Obama, á meðan hann sat á öldungadeild Bandaríkjaþings fyrir Illinois-ríki, hafi hjálpað til við samning um byggingu 3 stigs líföryggisrannsóknastofu í borginni Odesa í Úkraínu.

Greinin, sem einnig fjallaði um störf fyrrverandi öldungadeildarþingmannsins Dick Lugar, var jafnframt birt í 818. tölublaði Outreach Journal frá útbreiðsluvarnarmiðstöð bandaríska flughersins.

„Lugar sagði að áætlanir um rannsóknastofuna hefðu hafist árið 2005 þegar hann og þáverandi öldungadeildarþingmaðurinn Barack Obama hófu samstarf við úkraínsk stjórnvöld. Lugar og Obama hjálpuðu einnig til við að samræma samstarf bandarískra og úkraínskra vísindamanna það ár með það að markmiði að rannsaka og koma í veg fyrir fuglaflensu,“ skrifaði höfundurinn Tina Redlup.

The Gateway Pundit greindi einnig frá því árið 2022 að endurheimt hefði verið skjal sem sýndi að bandaríski herinn hefði fjármagnað líffræðilegar rannsóknir á kórónuveirum í Úkraínu.

Einnig hefur verið bent á að gögn úr fartölvu Hunter Biden sýndu að hann aðstoðaði við að tryggja fjármögnun fyrir bandaríska verktaka í Úkraínu sem sérhæfðu sig í rannsóknum á sýklum.

Á föstudag tilkynnti Tulsi Gabbard að hún muni aflétta trúnaði af gögnum um rannsóknastofur fjármagnaðar af Bandaríkjunum í 30 löndum.


Unnið upp úr grein Jim Hoft, ritstjóra The Gateway Pundit. Jim Hoft er stofnandi og ritstjóri The Gateway Pundit, eins af stærstu íhaldssömu fréttamiðlum Bandaríkjanna. Jim hlaut Reed Irvine Accuracy in Media-verðlaunin árið 2013 og fékk Breitbart-verðlaunin fyrir framúrskarandi netblaðamennsku frá Americans for Prosperity Foundation í maí 2016. Árið 2023 hlaut The Gateway Pundit verðlaun sem traustasti prentmiðilinn „Most Trusted Print Media Award“ á verðlaunahátíð American Liberty.