Pólland sniðgengur þvingaðan innflytjendapakka ESB – tekur ekki við fleiri innflytjendum

Sænski kratinn Ylva Johansson, lengst til vinstri á mynd, var leiðandi í innleiðingu innflytjendastefnu ESB sem þvingar aðildarríkin að flytja inn fólk eða greiðar háar sektir í staðinn.

Nýr fólksflutningasamningur ESB hefur tekið gildi. Pólland hyggst hvorki taka við innflytjendum samkvæmt kerfinu né greiða sektir til Brussel, að sögn innanríkisráðuneytis landsins.

Kjarni fólksflutningasamningsins er að aðildarríki neyðast til að taka við innflytjendum eða greiða há gjöld til að komast hjá því. Pólland hefur lengi verið andvígt þessu fyrirkomulagi og vísar meðal annars til álagsins við landamærin að Hvíta-Rússlandi og þess að landið hafi tekið við miklum fjölda stríðsflóttamanna frá Úkraínu.

Í yfirlýsingu frá talskonu innanríkisráðuneytisins, Karolinu Galecka, er afstaða Póllands staðfest:

„Pólland mun hvorki hleypa innflytjendum inn í landið samkvæmt samningnum né greiða sektir til framkvæmdastjórnar ESB“.

Ráðuneytið skrifar einnig að „Pólland muni ekki innleiða þau ákvæði samningsins sem ógna öryggi pólskra kvenna og karla“.

Pólland hefur fengið undanþágu frá endurdreifingu innflytjenda til loka þessa árs. Ríkisstjórnin leggur þó áherslu á að hún líti ekki á undanþáguna sem lokapunkt málsins.

Í yfirlýsingunni skrifar ráðuneytið að nokkrum hlutum samningsins hafi verið breytt eftir samningaviðræður Pólverja og að landið hyggist aðeins taka þátt í þeim þáttum sem styrkja landamæravörslu og baráttuna gegn ólöglegum innflutningi innflytjenda.

Pólska ríkisstjórnin segist jafnframt styðja hraðari brottvísanir útlendinga sem dvelja ólöglega innan ESB. Samkvæmt ráðuneytinu hefur Pólland frá árinu 2022 verið eitt af leiðandi ríkjum ESB þegar kemur að brottvísunum og sjálfviljugum heimförum. Talið er að fjöldi árangursríkra brottvísana hafi aukist um 200 prósent.

Stefna sænsku ríkisstjórnarinnar er að landið taki ekki við sínum hluta hælisleitendakvótans heldur greiði sektir til ESB í staðinn.

– Við munum ekki taka við hælisleitendum, heldur hefur ríkisstjórnin ákveðið að við munum þess í stað greiða fjárframlag á næsta ári, sagði innflytjendaráðherrann Johan Forssell við SVT í desember 2025.