Síðasti þáttur Ísafoldar 2025 var tekinn upp í gær með Jóni Magnússyni fyrrverandi þingmanni Sjálfstæðisflokksins og hæstaréttarlögmanni. Íris Erlingsdóttir og Gústaf Skúlason ræddu við Jón meðal annars um hneykslismálið í Minnesóta þar sem Íris býr en þar hafa Sómalir kerfisvætt spillingu með því að þykjast reka barnaheimili, leikskóla og barnaskóla án þess að nein starfsemi sé í gangi en milljónirnar rúlla frá alríkinu til verkefnanna.
Þetta er ein afleiðing góðmennskunnar við innflytjendur að litið er í hina áttina þegar þeir fremja augljósa glæpi. Til dæmis í Svíþjóð er helmingur allra einkafyrirtækja í heilsugeiranum eins og aðstoð við aldraða mannaður af glæpahópunum sem eru sífellt að teygja sig lengra inn í sjálfa samfélagsbygginguna.
Jón Magnússon er mikill baráttumaður fyrir sjálfstæðri hugsun og sjálfstæðu lífi. Hann ber eins og mjög margir Íslendingar neista í brjósti fyrir velferð landsins, menningu og tungu. Vandamál innflytjenda eru þau sömu á Íslandi og öðrum Norðurlöndum og allri Evrópu. Þessi stefna með galopin landamæri kemur frá Sameinuðu þjóðunum sem einnig hafa komið með loftslagsvá, genabreytandi sprautur, kynjafræði og núll losun til Vesturlanda. Jón segir hömlulausan flutning innflytjenda til landsins vera innrás:
„Þetta er í rauninni ekkert annað en innrás. Í rauninni í fyrsta sinn í mannkynssögunni, þar sem heimamenn borga innrásarliðinu fyrir að gera innrás.“
Afleiðingarnar sjást í sívaxandi kostnaði sem setur allt velferðarkerfið í upplausn, því stjórnvöld eru samtímis að auka allar skattaálögur á landsmenn og atvinnuvegi eins og sjávarútveg og ferðaþjónustu. Dregið er úr framleiðslu á sama tíma og hennar er mest þörf til að takast á við vandann. Jón segist ekki vera neitt sérlega bjartsýnn á nýja árið með núverandi stjórnarstefnu ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur. Hann segir:
„Mikilvægasta málið á næsta ári er að ná atvinnuleysinu niður, þannig að þær hendur sem vilja starfa fái störf. Auka á aflaheimildir svo hægt sé að auka fiskveiðar. Svo þarf að koma ferðaiðnaðinum í eðlilegt horf og minnka skatta, því það er áhugi á landinu erlendis en skattar koma í veg fyrir að fólk komi hingað. Svo verður að huga að íslenskri menningu og tungu. Ef við missum stjórn á menningu okkar og hún glatast, þá verður ekki aftur snúið.“
Rauði þráðurinn í áramótaþættinum var um afskiptaleysi fjölmiðla eins og RÚV að segja fréttir af því sem er að gerast, því stofnunin er gegnumpólitísk og vinnur fyrir stefnu ákveðins flokks/flokka. Nýlega fóru bændur í allri Evrópu á traktórum sínum til Brussel í uppreisn gegn reglugerðafargani og sköttum ESB en lítið sem ekkert var sagt frá því í meginmiðlum. Í gagnrýni sinni á RÚV ræddi Jón um RÚV sem fréttastofu sem Íris brást óðara við og sagði:
„Það er rausnarlegt af þér Jón að kalla RÚV fréttastofu!“
Smelltu á spilarann að neðan til að horfa á þáttinn:

