Bandarísk sendiráð munu kortleggja glæpi tengdum fjöldainnflutningi á Vesturlöndum

Bandaríkin herða baráttuna gegn innflytjendakreppu Vesturlanda. Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, fyrirskipar öllum bandarískum sendiráðum á Vesturhveli jarðar að kortleggja glæpi og misnotkun og jafnframt þátt viðkomandi stjórnvalda í því ferli sem hefur skapað grundvöll að innflytjendakreppu Vesturlanda. Enn á ný eru Bandaríkjamenn í fararbroddi leiðréttingaraðgerða fyrir lýðræðið og fullveldi þjóða og er þessi fyrirskipun sögulegt skref sem vonandi leiðir til þess að undið verði ofan af vók-rugli Vesturlanda.

Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur falið öllum sendiráðum Bandaríkjanna á Vesturhveli jarðar að kortleggja glæpi og misnotkun sem tengist fjöldainnflutningum. Markmiðið er að binda enda á sístækkandi vandamál sem fylgja í kjölfarið, að sögn Fox News. Fyrirmæli Rubio þýða að sendiráð verða núna að tilkynna um mannréttindabrot sem eiga sér stað í tengslum við fólksflutningana. Á það við um smygl á fólki, nauðungarvinnu, mansal á börnum og kynferðislegt ofbeldi. Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna segir:

„Sendiráð munu tilkynna um glæpi sem stafa af fjöldaflutningum og greina stefnu stjórnvalda sem auðveldar eða hvetja til þeirra.“

Þjóð án landamæra er ekki þjóð

Vitnað er til ummæla forseta Bandaríkjanna:

„Eins og Trump forseti sagði: „Þjóð án landamæra er ekki þjóð“ og hann undirstrikaði að það sé nauðsynlegt fyrir velferð allra borgara að vernda fullveldið og öryggið.“

Fyrirmæli Rubio eiga ekki aðeins við um fjandsamleg ríki. Samstarfsaðilar Bandaríkjanna á Vesturlöndum gætu einnig lent undir eftirliti, ef stefna þeirra er talin hygla farandfólki á kostnað eigin borgara landsins. Ráðuneytið skrifar í einni af yfirlýsingum sínum á X:

„Sendiráð munu greina stefnu stjórnvalda sem hygla farandfólki fram yfir borgara.“

Í tilskipuninni er því haldið fram að fjöldainnflutningur hafi haft í för með sér gríðarlegt álag á hæliskerfi Bandaríkjanna og leitt til „yfirþyrmandi fjölda verndarkrafna og óvænts hagnaðar fyrir innflytjendalögfræðinga og frjáls félagasamtök sem stuðla að fjöldaflutningum.“ Þá segir:

„Ríkið mun hvetja ríkisstjórnir til að forgangsraða að framfylgja lögum til verndar landamæra sinna og draga afbrotamenn til ábyrgðar sem brjóta gegn mannréttindum. Þetta felur í sér brot sem framin eru af innflytjendum og þeim sem greiða götu fjöldaflutnings og ólöglegra innflytjenda. Ríkið mun einnig varpa ljósi á hvernig fjöldaflutningur og ólöglegir innflytjendur hafa áhrif á borgara viðkomandi svæðis og hver skylda stjórnvalda er til að vernda sína eigin borgara, sérstaklega þegar kemur að landamæraeftirliti og samstarfi í dómsmálum.“

Enn fremur:

„Ef löggæslan hagræðir innflytjendum óhóflega á kostnað borgaranna, þá vill ríkið vita það. Ríkið vill einnig vita hvort stjórnvöld eða fjölmiðlar séu að hylma yfir eða gera lítið úr upplýsingum um glæpi og refsingar innflytjenda – eða hvort þær séu ekki til staðar. Sérstaklega er hvatt til og vel þegið að frá fréttir um atburði sem hafa áhrif á bandaríska ríkisborgara eða efnahags- og öryggishagsmuni Bandaríkjanna.“

Bandaríkin bjóða aðstoð

Samkvæmt utanríkisráðuneytinu eru fólksflutningar í dag samofnir skipulagðri glæpastarfsemi. Bent er sérstaklega á glæpahópa sem nota fólksflutningaleiðir til að dreifa fíkniefnum, beita ofbeldi og stunda mansal: „Glæpahópar sem gera fjöldaflutninga mögulega tengjast of barnasölu, nauðungarvinnu og kynferðisofbeldi.“

Bandaríkin segja hömlulausa fjöldaflutninga undanfarinna ára hafa leitt til alþjóðlegrar kreppu. Ákvörðun Rubio sýnir að Bandaríkin taka forystu til að vinna bug á þessari kreppu. Bandaríkjastjórn hvetur einnig aðrar ríkisstjórnir til að gera slíkt hið sama:

„Bandaríkin eru reiðubúin að vinna með öðrum löndum í heiminum til að stöðva fjöldaflutningana.“

Sjá nánar hér og hér

Fara efst á síðu