Fyrsti borgarstjóri New York sem sver sig við Kóraninn inn í embættið

Zohran Mamdani, nýr borgarstjóri New York, sósíalisti og múslími, var svarinn í embættið með eiðstaf við Kóraninn og Sharíalög á 12 slaginu Gamlárskvöld í yfirgefnu neðanjarðarlestarstöðinni City Hall. Sagði hann táknrænt fyrir hina nýju og breyttu tíma að hafa athöfnina í gamalli ónotaðri neðanjarðarlestastöð sem væri upphaf „vígslu nýrrar tíma.“

Mamdani sagði í yfirlýsingu:

„Þetta var minnismerki um borg sem þorði að vera bæði falleg og byggja upp stórkostlega hluti sem myndu umbreyta lífi verkafólks. Þessi metnaður þarf ekki að vera minning sem er bundin við fortíð okkar, né má hún einangrast við göngin undir ráðhúsinu: það verður tilgangur stjórnsýslunnar sem er svo heppin að þjóna New York-búum frá byggingunni fyrir ofan.“

Hann bætti við að hann væri

„auðmjúkur yfir tækifærinu að leiða milljónir New York-búa inn í nýja tíma tækifæra og heiður að halda áfram arfleifð stóru borgarinnar.“

Stöðin opnaði árið 1904 sem ein af upprunalegu 28 neðanjarðarlestarstöðvum borgarinnar og var tekin úr notkun árið 1945 vegna uppfærslu á kerfinu. Stöðin var tilnefnd sem kennileiti fyrir New York borg árið 1979 og sett á Þjóðskrá yfir sögulega staði árið 2004.

Letitia James, dómsmálaráðherra New York, las Mamdani fyrsta embættiseiðinn. Á nýársdag var önnur athöfn haldin á tröppum ráðhússins meðal annars að viðstöddum Bernie Sanders, öldungadeildarþingmanni Demókrata frá Vermont.

Mamdani, sem blandar saman undarlegri tegund af íslam og öfgavinstri sósíalisma í stjórnmálum, sór eiðinn með því að nota Kóraninn sem hann erfði frá afa sínum. Hann notaði einnig sérstakan Kóran sem var eitt sinn í eigu Arturo Schomburg, þekkts svarts rithöfundar og sagnfræðings. Í opinberu athöfninni í ráðhúsinu sór Mamdani eiðinn á Kóran sem tilheyrðu bæði afa hans og ömmu.

Ekki eru allir á eitt sáttir við þessa þróun eins og sjá má á myndskeiðinu hér að neðan.

Fara efst á síðu