Gúmmístígvél Kristrúnar halda ekki vatni

Hvort sem um er að ræða gömul gúmmístígvél úr Skagafirði eða fyrstu gúmmístígvél ríkisstjórnar Kristrúnu Frostadóttur, þá hefur það sýnt sig að þau halda hvorki vatni né vindi.

Það er alltaf jafn furðulegt að horfa á þjálfað vel málað sjónvarpsandlit fara með innantóm orð, í ræpuflæði um eigið ágæti og málaðri fantasíu um heiminn sem við lifum í. Maður spyr sig hvað það er í heilabúi slíks fólks sem lýsir slíkri veröld handan veggja raunveruleikans og skælbrosir síðan og fnæsir yfir eigin verðleikum. Áhorfendur eiga sjálfsagt að fleygja sér í gólfið í aðdáun og lofa hinn mikla meistara, kyssa fætur hans, því hvorki vaxa né dafna blóm, trjáviður, gras né dýralíf að ekki sé talað um mannlíf án aðkomu meistarans. Íslendingar fá að draga andann þökk sé frú Kristrúnu. Hallelúja, þökk sé þér Kristrún og dýrð lýsi upp stígvélin þín.

Áramótaræða forsætisráðherrans endurspeglar fyrst og fremst eigið mat hennar á sjálfri sér: Hún er mikilvægust allra Íslendinga. Sótti peninga úr ríkissjóði til ESB-ferðalaga til að semja við van der Leyen um verkefnið að gleypa Ísland í einum bita sem forsætisráðherrann segir að séu hagsmunir Íslands. Falsið og fláræðið var takmarkalaust í áramótaræðu Kristrúnar.

Varar þjóðina við Bandaríkjunum


Það sem einkenndi ræðu Kristrúnar er að hún nefnir ekki hlutina sínum nöfnum, talar að hætti einræðisherra í gátum og skilur það eftir hjá áheyrandanum að fylla upp í eyðurnar. Kristrún varar þjóðina við því að „hrífast ekki af sviptivindum í stjórnmálum annarra ríkja.” Án þess að segja það hreint út er hún númer eitt að meina Donald Trump í Bandaríkjunum sem án efa er hressasti frelsisgustur jarðar um þessar mundir.

Má þar nefna nýlega tilskipun utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna til allra sendiráða sinna í Vesturheimi að:

tilkynna um glæpi sem stafa af fjöldaflutningum og greina stefnu stjórnvalda sem auðvelda eða hvetja til þeirra.“

Bandaríkjamenn sitja ekki við orðin tóm eins og strandaðar valkyrjur á flæðiskeri í ballarhafi. Þeir skilgreina hömlulausa fjöldainnflutninga sem alþjóðakreppu Vesturlanda. Sendiráð Bandaríkjanna mun því:

„greina stefnu stjórnvalda sem hygla farandfólki fram yfir borgarana.“

Bandaríkjamenn eru líka samkvæmir sjálfum sér í afstöðu sinni til ritskoðunar og hafa bannfært a.m.k. fimm einstaklinga ESB frá því að ferðast til Bandaríkjanna vegna ritskoðunar í Evrópu. Það er sama ritskoðun og frú Kristrún aðhyllist í hjarta sínu og ætlar að koma á á Íslandi eftir misbeitingu valds á Alþingi með afnámi málfrelsis þingmanna.

Trump Bandaríkjaforseti sagði:

Þjóð án landamæra er ekki þjóð“

Þetta er sú stefna sem frúin á Íslandi með stígvélin úr Skagafirði varar þjóðina við að hrífast ekki með.

Og það kallar hún hagsmuni Íslands.

Fara efst á síðu