Áramótaspár á samfélagsmiðlum

Það er fróðlegt að fylgjast með áramótahugleiðingum fólks á samfélagsmiðlum og hér er vitnað í eina slíka á Facebook, skrifuð af Arnari Loftssyni sem spáir meðal annars eftirfarandi:

  • Ofsaskattahækkanir munu koma fram í lok þessa árs.
  • Þessi gjaldþrota ESB leið býður upp skuldasöfnun og kólnun hagkerfisins…
  • Verið er að fara gömlu leið Argentínu (gjaldþrota land í áratugi).
  • Gefið er í skuldasöfnun og 143 milljarða fjárlagahalla

Arnar víkur að muninum á sósíalisma og kapítalisma:

„Þetta eru engin geimvísindi… minnka ríkisbáknið… ríkið á og þarf ekki að sjá um alla hluti. Bara grunnþjónustu….Ríkissjóður skapar engin verðmæti… ENGIN…Gjaldeyrisöflun og tekjur kemur frá einkaframtakinu sem heldur uppi þjóðfélaginu okkar algjörlega. Sósíalistar hafa einkennilega áráttu að blóðmjólka kúnna sem sér að koma með mjólk á bæinn. Að lokum gefst kusa upp.“

Arnar ræðir um stjórnmálin:

„Er að kjósendur þessarrar ESB ríkisstjórnar átta sig á, hvað þeir kusu yfir sig. Sérstaklega kjósendur Samfylkingarinnar. Sem er að fá 30% fylgi í skoðanakönnunum. Furðulegt og segir okkur mikið, hve mikið er búið að heilaþvo Íslendinga í Sósíalistahagfræðunum. Þessir kjósendur ESB flokkanna bera fulla ábyrgð á komandi hnignun og stöðnun. Já við erum að fara í sömu gjaldþrota leiðina og er í ESB. Þegar raunveruleikinn rennur upp, þá verður Samfylkingin ekki stærsti flokkurinn…. heldur Miðflokkurinn.“

Hann endar með ósk um að „Ísland vakni og taki upp alvöru hægristefnu.“

Sjálfsagt taka allir íhaldsmenn undir þá ósk.

Fara efst á síðu