Söguleg kirkja brann í Amsterdam

Ein frægasta kirkja Amsterdam eyðilagðist gjörsamlega í eldsvoða á gamlárskvöld – á sama tíma og óeirðir voru í borginni, þegar skríll skaut eldflaugum á fólk og réðst á lögreglu. En yfirvöld hafa verið fáorð um hvað raunverulega gerðist í kirkjunni, að því er Samnytt greinir frá.

Vondelkerk, kirkja frá 19. öld í miðbæ Amsterdam brann til ösku. Eldurinn kom upp rétt eftir miðnætti á gamlárskvöld og breyttist fljótt í óviðráðanlegt eldhaf.

Eldurinn náði hátt upp í turn kirkjunnar, sem að lokum hrundi. Þakið varð einnig fyrir miklum skemmdum.


Slökkviliðið háði baráttu í fleiri klukkutíma við að slökkva eldinn. Vegna hættu á hruni byggingarinnar, þá neyddust íbúar á svæðinu til að yfirgefa heimili sín. Samkvæmt yfirvöldum slasaðist enginn en kirkjan var tóm þegar eldurinn kom upp.

Samtímis var algjör ringulreið á götunum á gamlárskvöld. Mikill mannfjöldi var úti og meðal annars fóru innflytjendahópar um borgina og skutu flugeldum og veifuðu Hamas fánum:

Svipaðar óeirðir voru á mörgum stöðum í Hollandi. Í Breda var ráðist á lögreglu með eldsprengjum og álagið á neyðarþjónustu og neyðarmiðstöð var svo mikið að almenningur var hvattur til að hringja aðeins í neyðarnúmerið við lífshættulegar aðstæður. Amk. tveir létust í flugeldaslysum.

Vondelkerk var byggð á 19. öld og er þekkt kennileiti í Amsterdam. Kirkjan var hönnuð af arkitektinum Pierre Cuypers og er nefnd eftir skáldinu Joost van den Vondel. Opinberlega er enn óljóst hvað olli eldsvoðanum en tæknileg rannsókn átti að hefjast í þessari viku.

Hollenska baráttukonan Eva Vlaardingerbroek gagnrýnir harðlega þögn lögreglunnar um atvikið. Hún segir:

„Núna er kirkjan horfin og auðvitað segir lögreglan ekkert – hún segir okkur ekki hver gerði þetta eða hvað gerðist nákvæmlega. En upplýst ágiskun – og það höfum við séð á X, er að unglingahópar hafi skotið flugeldum á kirkjuna og kveikt í henni.”

Fara efst á síðu