Trump íhugar „djúpvasa aðferðina“ til að fá Grænlendinga til að styðja aðild að Bandaríkjunum

Margir Grænlendingar hafa tjáð sig í fjölmiðlum og segjast vilja segja skilið við Danmörku og verða sjálfstætt ríki. Norðurlandaráð sendi frá sér yfirlýsingu í gær um „skilyrðislausan stuðning við Grænlendinga og óafsalanlegan rétt þeirra til að taka ákvarðanir um eigið land og eigin framtíð.” Núna berast fréttir innan úr Hvíta húsinu samkvæmt Reuters, að verið sé að ræða að Bandaríkjastjórn geri Grænlendingum hagstætt efnahagslegt tilboð, sem gæti mögulega haft áhrif á afstöðu þeirra til meira samstarfs við Bandaríkin.

„Djúpvasa aðferðin“

Á meðan leiðtogar glóbalismans í Evrópu eru í sínu eftirlætis móðursýkiskasti og búast við bandarískri árás á Grænland „á næstu sekúndu þá berast fréttir um að stjórn Donalds J. Trumps gæti notað allt öðru vísi aðferð en hernaðarlega árás á Grænland, nefnilega hina svo kölluðu „djúpvasa aðferð.“

Sagt er að bandarískir embættismenn séu að ræða eingreiðslur til Grænlendinga til að sannfæra þá um að segja skilið við Danmörku og ganga til liðs við Bandaríkin. Reuters greinir frá því að heimildarmenn Hvíta hússins sem báðu um nafnleynd sögðu að verið sé að ræða tölur „á bilinu 10.000 til 100.000 Bandaríkjadala á mann.“

Hugmyndin um að greiða beint til íbúa Grænlands, sem er yfirráðasvæði Danmerkur, býður upp á þá skýringu að Bandaríkin gætu reynt að „kaupa“ eyjuna með 57.000 íbúum, þrátt fyrir að yfirvöld í Kaupmannahöfn og Nuuk hafi staðhæft að Grænland sé ekki til sölu.“

Yfirlýsing Norðurlandaráðs

Jens-Frederik Nielsen, forsætisráðherra Grænlands, skrifaði í Facebook-færslu á sunnudag eftir að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagði blaðamönnum enn og aftur að Bandaríkin þyrftu að eignast eyjuna:

„Nú er nóg komið … Engar fleiri hugaróra um innlimun.“

Á þriðjudag sendu Frakkland, Þýskaland, Ítalía, Pólland, Spánn, Bretland og Danmörk frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem þau sögðu að „aðeins Grænland og Danmörk gætu ákveðið mál varðandi samskipti sín á milli.“

Á fimmtudag sendi Norðurlandaráð frá sér eftirfarandi tilkynningu:

Við ítrekum eindreginn og skilyrðislausan stuðning okkar við Grænlendinga og óafsalanlegan rétt þeirra til að taka ákvarðanir um eigið land og eigin framtíð, sem er órjúfanleg grundvallarregla í alþjóðalögum.

Grænland er mikilvægur og órjúfanlegur hluti norrænu fjölskyldunnar, Norðurlandaráðs, Norðurlanda og hins norræna samstarfs.

Norðurlandaráð vinnur einart að því að stuðla að lýðræði og réttarreglu og að því að standa vörð um og styrkja reglubundna alþjóðaskipan.

Öll norrænu löndin eiga nú aðild að Nató og öll hafa þau sterk tengsl við Bandaríkin hvað varðar fjölskyldubönd, menningu, efnahag og öryggi. Við leggjum áherslu á að stuðla að nánara samstarfi við Bandaríkin, en það verður að byggjast á virðingu fyrir fullveldi ríkja, friðhelgi yfirráðasvæða og lýðræðislegum gildum. 

Ákvarðanir um málefni er varða Grænland og konungsríkið Danmörku geta einungis verið teknar af Grænlandi og Danmörku.

Helsinki, 8. janúar 2026

Ville Väyrynen                                                      Kim Berg
Forseti                                                           Varaforseti

Utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Marco Rupio, mun hitta forráðamenn Danmerkur og Grænlands í næstu viku.

Fara efst á síðu