Konan sem reyndi að drepa ICE-starfsmann í Minneapolis leiddi skipulögð mótmæli

Starfsmenn innflytjendastofnunar Bandaríkjanna leita uppi ólöglega innflytjendur til að koma þeim burtu úr landinu. Á miðvikudagsmorgun gerðist það í Suður-Minneapolis að 37 ára gömul kona, Renee Nicole Good, reyndi að keyra á bíl sínum á einn ICE-starfsmanninn sem brást við í sjálfsvörn og skaut bílstjórann samanber Fox News. Myndskeið af atburðinum má sjá á X hér að neðan:

Trump skrifaði um málið:

Borgarstjórinn í Minneapolis, Jacob Frey, réðst harkalega að starfsmönnum ICE, Immigration and Customs Enforcement, og skipaði alríkisstarfsmönnunum að hypja sig tafarlaust burt úr bænum:

Sú mynd sem sumir miðlar reyna að gefa er að Renee Nicole Good hafi verið saklaus kona sem var stödd á röngum stað á röngum tíma. En vitni á staðnum sem Right Angle News talaði við, útskýrði að Good leiddi skipulögð mótmæli vinstri manna gegn ICE starfsmönnunum og reyndi að hindra þá við störf sín. Good var á stærsta bílnum og lokaði veginum og ICE starfsmennirnir reyndu að fá hana til að flytja sig, þegar hún ákvað að reyna að keyra niður einn ICE starfsmanninn:

Fox News greindi frá því að skömmu eftir banaskotið hófust mótmæli í Minneapolis samtímis og veggspjöld voru sett upp í öðrum borgum til að mótmæla ICS og Donald Trump. Um skipulögð mótmæli var að ræða eins og Fox hefur áður greint frá vinstri öfgahópum tengdum hryðjuverkasamtökum eins og Antifa og Black Lives Matter.

Alex Soros notaði tækifærið til að bauna á ICE en fékk andsvar, því þetta væri einmitt eitthvað sem hann óskaði sér til að æsa upp í vinstrimönnum sem kalla Trump-stjórnina fyrir „hryðjuverkamenn og Gestapó.“

Starfsmaður ICE sem skaut Renee Good og varð fyrir bílnum er nýkominn af sjúkrahúsi. Samkvæmt yfirvöldum var hann í lífshættu, þegar hann skaut og skilgreina yfirvöld atburðinn sem innlenda hryðjuverkastarfsemi. Hér má sjá myndskeið um málið:

Fara efst á síðu