Ekki virðist Rússafóbían vera nægjanleg fyrir móðursýkiselskendur ESB sem þurfa að vera í geðveikiskasti alla daga, því núna er USA-fóbían farin að skyggja á Rússafóbíuna. Trump-heilkennið saxar á Pútín-heilkennið. Norðurlandaráð sendir frá sér yfirlýsingu til stuðnings við Danmörku vegna hugsanlegrar yfirvofandi árásar Trumps á Grænland, dönskum hermönnum er sagt að skjóta fyrst á Kanann á Grænlandi og spyrja svo og helsti varnarmálasérfræðingur Danmerkur segir að Bandaríkin gætu við minnstu veðurhviðu breyst úr keppinaut í óvin. Boðskapur Norðurlanda er sem sagt – lesið á milli línanna: Við verðum að vígbúast gegn Bandaríkjunum.
– Er Hitler genginn aftur?
Á meðan „leiðtogar“ glóbalismans í Evrópu eru í sínu eftirlætis móðursýkiskasti og búast við bandarískri árás á Grænland á næstu sekúndu, þá berast fréttir um að stjórn Donalds J. Trumps hafi fundið upp afkastamikið vopn í stað hernaðarlegrar árásar á Grænland: hina stórhættulegu „djúpvasa aðferð.“
Sagt er að bandarískir embættismenn séu að ræða eingreiðslur til Grænlendinga til að sannfæra þá um að segja skilið við Danmörku og ganga til liðs við Bandaríkin. Reuters greinir frá því að heimildarmenn Hvíta hússins sem báðu um nafnleynd sögðu að verið sé að ræða tölur „á bilinu 10.000 til 100.000 Bandaríkjadala á mann.“
Kannski það sé meiri framtíðarvon fyrir Grænlendinga en takmarkaðar barneignir í boði danska konungsveldisins. Sannleikurinn er sá að frelsisþráin brennur í hjörtum Grænlendinga sem vilja segið skilið við Danmörku rétt eins og Íslendingar gerðu árið 1944.
Glóbalistar Evrópusambandsins mála skrattann á vegginn, Pútín og Trump. ESB undirbýr sig fyrir tilgangslaust stríð við Rússa og núna gegnum Norðurlandaráð við hinn nýja óvin Bandaríkin.
Það verður nú eitthvað þegar íslenski herinn sameinast þeim danska til varnar Grænlandi.
