The European Conservative birtir skrif Páls Vilhjálmssonar að vali ritstjórans (samsett mynd)
Svo virðist sem skrif Páls Vilhjálmssonar, blaðamanns og aðalbloggara Íslands. sé að verða útflutningsvara. Alla vega þykja greinar hans svo bitastæðar að skrif hans eru farin að birtast í alþjóðlegum miðlum eins og The Spectator og svo núna í dag á helstu síðu íhaldsmanna í Evrópu: The European Conservative.
Greinin sem ritstjóri miðilsins hefur valið sérstaklega til birtingar fjallar um ásælni Evrópusambandsins í Grænland, Ísland og Noreg samkvæmt stækkunaráformum ESB til norðurs. Páll skrifar um heimsókn Ursulu von der Leyen til Íslands og ræður hennar í stíl við Rómarkeisara til forna. Vandamálið eins og Páll sér það, er bara að Evrópusambandið er ekkert stórveldi. Þegar ESB er að einangrast í austri og suðri, stefnir sambandið til norðurs en Donald Trump hefur eyðilagt þá áætlun með baráttu um nærveru Bandaríkjanna á Grænlandi.
Páll skrifar:
„ESB og Evrópa höfðu veikst enn frekar þegar sambandið breytti átökunum milli Úkraínu og Rússlands í alþjóðleg pólitísk átök sem minntu á kalda stríðið. Í stað þess að semja við Moskvu um hlutlausa Úkraínu – án Nató – og veita rússneskumælandi austurhéruðum sjálfstjórn, þá kaus Brussel að skilgreina átökin sem siðferðilega krossferð milli góðs og ills og hafnaði hvers kyns málamiðlun.“
Páll segir það mikil mistök fyrir Evrópusambandið að fara í krossferð með Úkraínu sem vopn gegn Rússlandi í austri. Donald Trump hafi snúið það vopn úr höndum ESB með því að beita sömu rökum varðandi Grænland:
„Ef Rússland er stærsta ógn Vesturlanda, þá geta einungis Bandaríkin varið Grænland fyrir Rússlandi“
Í lýsingu miðilsins á Páli Vilhjálmssyni segir:
Páll Vilhjálmsson er blaðamaður, fyrrverandi kennari og vinsælasti stjórnmálaskríbent Íslendinga. Hann skrifar daglega um íslensk og evrópsk stjórnmál á bloggi sínu Tilfallandi.
Merki: Öryggi á norðurslóðum, Kína, Danmörk, Donald Trump, útvíkkun ESB, Evrópusambandið, Grænland, Norðurhöf, Ísland, Páll Vilhjálmsson, Pax Europaea, umboðsstríð, Rússland, Bandaríkin, Ursula von der Leyen

