Aftonbladet greinir frá því að traust kjósenda sé í fyrsta sinn meira til Jimmie Åkesson, formanns Svíþjóðardemókrata, en Magdalenu Andersson, formanns sósíaldemókrata, samkvæmt nýjustu könnun Demoskop.
Í nýjustu könnuninni segjast 43%kjósenda bera mikið traust til Jimmie Åkesson. Magdalena Andersson fylgir strax á eftir, með 42%.
Breytingin er tölfræðilega marktæk. Skoðanastjóri Demoskop, Johan Martinsson, bendir á að bilið á milli flokksformannanna hafi verið að minnka í langan tíma. Hann segir við Aftonbladet:
„Þetta er hluti af mynstri, við höfum séð hvernig hann hefur smám saman verið að færst nær. Fyrir tveimur og hálfu ári var bilið á milli þeirra 28%.“
Á sama tíma dregst Magdalena Andersson greinilega aftur úr í mörgum hópum kjósenda. Tapið er mest meðal stuðningsmanna Miðflokksins og Græningjaflokksins.
Simona Mohamsson, leiðtogi Frjálslynda flokksins, fær minnst traust í könnuninni og heldur áfram að tapa frá sögulega hörmulegum tölum og er núna með aðeins 4%. Johan Martinsson segir:
„Það gengur ekki svo vel hjá henni. Margir nýir flokksleiðtogar byrja með lágt traust sem síðan eykst. En hjá Mohamsson hefur traustið bara fallið. Ég hélt reyndar að það hefði jafnast út, en svo kom enn lægra hlutfall.“
