Hvað erum við að gera í Evrópu? Það eru 75 ár síðan svo hvað erum við að gera þarna? spyr ofursti Douglas Macgregor í nýjum viðtalsþætti við Glenn Diesen sem hefur fengið um 130 þúsund áhorf á ekki einum sólarhring.
Macgregor bendir á að Eisenhower hafi sagt að markmið Bandaríkjanna væri að taka hermenn sína burtu frá Evrópu eins fljótt og auðið væri eftir seinni heimsstyrjöldina en það hefur ekki verið gert. Eisenhower sagði að ef Bandaríkjamenn hefðu heri sína enn í Evrópu tíu árum eftir stríðslok, þá hefði þeim mistekist. Markmiðið væri að Evrópa kláraði sig sjálf án Bandaríkjamanna.
Trump er umsetinn fulltrúum sem segja í sífellu, þú getur ekki flutt hermennina heim, þú getur ekki breytt þessu eða hinu. Þetta er fólk sem vill ekki breyta neinu vegna þess að það truflar peningaflæðið. Standard þessa fólks er að vera á móti Rússum, Kínverjum og Íran og gera allt sem Ísraelir biðja um. Ekki má hrófla við neinu, því þá missir einhver spón úr eigin aski. Þetta er vandamálið þegar milljarðamæringar eru allt um kring sem ausa peningum í sína eigin hagsmuni og binda hendur stjórnmálamanna.
Douglas Macgregor segir að núverandi öryggisstefna Bandaríkjanna byggist meira á óskum en að vera fast mörkuð stefna. Hann segir að fáir vilja breyta neinu vegna eigin hagsmuna og peninga. Hann telur að Trump forseti líti á Grænland sem landsvæði sem eigi að tilheyra Bandaríkjunum fyrir varnir Bandaríkjanna og annað skipti litlu máli. Macgregor lýsir eftir grundvallarstefnu í öryggismálum, áætlun sem unnið er eftir í stað óskhyggju og skyndiákvarðana.
Ofurstinn sem gengdi ráðgjafastöðu í varnarmálum Hvíta hússins á fyrra forsetatímabili Trumps segir:
„Ég veit að Trump er heiðarlegur maður og hann vill ekki fara í stríð við Rússa. Hann vill ekki fara í stríð við Kínverja. Ég veit að hann er ekkert hrifinn af því að fara í stríð við Íran. Þetta er ekki hann. En hann er fangi afla og aðstæðna, ef ég á að vera hreinskilinn.”
Douglas Macgregor trúir ekki að Rússar muni skrifa undir friðarsamning á meðan Bretland, Frakkar, Þjóðverjar og Úkraína hafa gaddað sig saman gegn Rússlandi og það séu efasemdir um hvort Trump hafi í reynd stjórn á Nató. Ofurstinn telur upp nöfn þekktra stríðshauka í Washington sem vilja halda Úkraínustríðinu áfram hvað sem það kostar.
„Hvaða fólk er í kringum forsetann og hvað hagsmuni standa þau fyrir? Þetta er ekki sá hópur sem setur Bandaríkin í fyrsta sæti sem ég og milljónir aðrir Bandaríkjamanna kusu. Ég hef meiri áhyggjur af því, hvernig gengur að halda uppi lögum í Bandaríkjunum sem bindur okkur saman sem eina þjóð, en því sem er að gerast í Írak eða Íran.”
Douglas Macgregor segir einnig að til að hægt sé að ljúka stríðinu í Úkraínu, þurfi að koma Zelenský og glæpamönnum í kringum hann frá völdum. En það er ekki gert. Zelenský með milljarða stolna dollara á eigin bankareikningum er í boði stríðshaukanna til að halda stríðinu í gangi hvað sem það kostar.
