Skrif Páls Vilhjálmssonar vekja athygli erlendis

The Spectator, elsta og virtasta vikulega stjórnmálatímarit Bretlands, stofnað árið 1828, birtir í dag grein eftir Pál Vilhjálmsson blaðamann og bloggara um samband Grænlands og Danmerkur. Greinin birtist í bandarískri útgáfu blaðsins undir fyrirsögninni:

Tilheyrir Grænland eiginlega Danmörku?

Í greininni rekur Páll Vilhjálmsson söguleg samskipti Danmerkur og Grænlands og skýrir að „Grænland sem byggð er annarri þjóð en Dönum séu nýlenda Dana.” Alþjóðleg viðurkenning á yfirvaldi Dana á Grænlandi hefur grundvallast á þeirri forsendu að:

„hvorki var efast um réttmæti eignar danska ríkisins á gömlu nýlendunni né gerði annað ríki tilkall til að eignast hjálenduna. Trump breytti stöðu mála. Danir eru knúnir til að réttlæta yfirráð sín yfir stærstu eyju heims sem byggð er annarri þjóð en Dönum. Fátt er um fína drætti í þeirri réttlætingu.

Grænland valdi aldrei að verða hluti af danska ríkinu. Landið flaut með Íslandi, Færeyjum og Noregi inn í Danaríki á 14. öld eftir að norskir frændur okkar gáfust upp á sjálfstæðu norsku konungsríki. Rökin fyrir yfirvaldi Dana á Grænlandi eru söguleg, en hvorki siðferðileg né pólitísk. Enn síður að Danmörk geti teflt fram hernaðarlegum rökum fyrir að Grænland sé hluti danska konungsríkisins.”

Greinilega eru þessi rök svo þung að The Spectator sér ástæðu að lyfta þeim fram í stjórnmálaumræðunni um Norðurslóður í Bandaríkjunum og skal Páll Vilhjálmsson hafa heiður af því.

Þjóðólfur fagnar athygli alvöru fjölmiðla á alvöru blaðamönnum á Íslandi. Ekki eru fréttamenn á RÚV uppteknir við að segja satt og rétt frá helstu ágreiningsmálum nútímans. Þeir eru frekar uppteknir við að reyna að þagga niður í Páli Vilhjálmssyni sem uppljóstraði um byrlunarmál á RÚV sem Blaðamannafélag Íslands reynir að verja og múlbinda niður.

Hér má fara inn á bloggsíðu Páls Vilhjálmssonar.


The Spectator er vikulegt breskt íhaldssamt tímarit, stofnað árið 1828, þekkt fyrir áhrifamikil og staðföst skrif um stjórnmál, menningu og listir. The Spectator er elsta stjórnmálatímarit Bretlands sem enn er gefið út og er lengst starfandi tímarit um samtímamál í heimi.

Lestrarhópur The Spectator – The Spectator UK og The Spectator USA – er breytilegur eftir kerfum. Nýlegar tölur frá árinu 2024 sýna að meðalupplag vikulegrar útgáfu (að Ástralíu undanskildu) fyrir prentað/stafrænt efni er um 130.000 eintök samanlagt, en stafrænt kerfi Spectator TV nær til yfir 300.000 áskrifenda. Vefsíða þeirra/fréttabréf laða að sér MILLJÓNIR lesenda vikulega, sem bendir til mikillar útbreiðslu. The Spectator var stofnað árið 1828; það er elsta vikulega tímarit heims sem enn er gefið út og elsta stjórnmálatímarit Bretlands sem enn er gefið út. The Spectator US Edition var stofnað árið 2018.

Fara efst á síðu