Kristrún bjargar ESB og þeim viljugu

Það hefur aldeilis hlaupið á snærið hjá ESB með íslensku valkyrjunum. Þær eru búnar að skrifa undir að fylgja utanríkisstefnu og opna aðildarviðræður við ESB án þess að spyrja kjósendur. Búnar að opna sjávarútvegsmálin, gefa frá sér makríl og skrá Ísland með í stríðshóp þeirra viljugu án þess að spyrja landsmenn. Búnar að skrifa undir breytingu Almannavarna sem ESB hernaðarviðbót án þess að spyrja kóng né prest. Búnar að taka afstöðu gegn lýðræðislega kjörnum forseta Bandaríkjanna án þess að ræða málið við þing né þjóð. 

Miðað við öll þessi afrek má spyrja hvort þingkosningunum sé ekki ofaukið á Íslandi? Varla þurfa fleiri kosningar að fara fram þegar fólk kemst upp með ofangreint.

Kristrún Frostadóttir hlýtur að fá Höllu-orðuna fyrir byltingarkenndustu uppgötvun allra tíma: Grænland tilheyrir konungsveldinu Danmörku. Þetta upplýsti hún Mette Fredriksen um í einni sleðaferðinni til Grænlands. 

Og hinir viljugu, herrarnir Macrón, Starmer, Merz eða Tusk  dansa og baða í rauðum rósum í París himinlifandi yfir þessu einstæða íslenska vopni sem hægt er að nota til að bauna á Trump. Makrón hættir með uppgjafartón, Starmer aldrei meir sínum samlöndum sver, Merz hættir að vera þvers og allir geta sofið rólega því Tusk verður ekki lengur með neitt rúmrusk. Herrarnir standa fremstir í biðröð eftir að fá mynd af sér með hennar hátign, Valkyrjudrottningunni á Íslandi. 

Forsætisráðuneytið mun síðan poppa upp þessar vinsældir Kristrúnar og hefja miðasölu fyrir myndatökur með henni og þar með verður saumað fyrir öll göt ríkissjóðs og hægt að afnema alla skatta á landsmenn. 

Til hvers þurfa menn þá kosningar eftir það?

Fara efst á síðu