Mótmæli bænda um allt land í Póllandi gegn samningi ESB og Mercosur hófust í Póllandi fyrir hádegið á gamlárskvöld á yfir 190 stöðum um allt land. Þann 9. janúar 2026 eru boðuð mikil bændamótmæli í Varsjá.
Kamil Szymański, meðskipuleggjandi mótmælanna sagði við Telewizja wPolsce24:
„Ekki er um stuðningsyfirlýsingu við ríkisstjórnina að ræða eins og sumir hafa haldið fram. Ef við værum ánægð með aðgerðir ríkisstjórnarinnar, þá þyrftum við ekki að vera hér í dag.“
Bændur frá öllu Póllandi fóru út á götur til að mótmæla viðskiptasamningi við Mercosur-löndin sem er skaðlegur evrópskum landbúnaði.

Kamil Szymański sagði:
„Herferðin gegn ESB er undir slagorðinu „Stöðvið Mercosur“ sem bændur mótmæltu harðlega við undirritun samningsins. Við neitum að ESB hleypi vörum af miklu lélegri gæðum inn á markaðinn okkar. Við framleiðum matvæli í hæsta gæðaflokki og það er óljóst hvers vegna verið er að eyðileggja þetta margra ára erfiði.“
„Verndunarákvæði vernda ekki landbúnaðinn vegna þess að ESB skortir slík tæki. Þetta eru klækir til að reyna að koma í veg fyrir að við mótmælum. Fólk í Póllandi segir eitt og þeir sem eru í ESB segja annað.“

Mercosur getur eyðilagt pólskan landbúnað
Bændur hafa lengi varað við því að undirritun samnings við Mercosur-löndin myndi þýða tortímingu landbúnaðarins innan ESB. Covid-19 faraldurinn með truflanir á framboðskeðjum hafði neikvæð áhrif á samfélagið. Ef landbúnaðurinn í Póllandi glatast og geta til að framleiða hollan mat týnist gætu Pólverjar lent í lífshættu í höndum ESB sem gæti beitt matvælaskömmtun sem stjórnmálalegum og efnahagslegum þrýstingi. Ekkert land má bregðast skyldu sinni um eigið fæðuöryggi til landsmanna sinna.
