Þrátt fyrir mikla öryggisgæsla á gamlárskvöld tókst ekki að koma í veg fyrir ofbeldi í borgum, árásir á lögreglumenn og íkveikjur bíla skrifar Le Figaro. Kveikt var í 1.173 ökutækjum sem er nærri landsmetinu: 1.300 bílabrunar á gamlárskvöld árið 2019.
Blaðið bendir á að innanríkisráðherrann Laurent Nunez hafi tilkynnt um „núll-stefnu“ löggæslunnar og „tafarlausar handtökur“ óeirðaseggja sem ekki er að skila sér á götum úti. Í samanburði við óeirðirnar í fyrra, þegar kveikt var í 984 bílum hefur bílaíkveikjum fjölgað um 19%. Í fréttatilkynningu ráðuneytisins kemur fram að samtals voru 505 manns handteknir á landsvísu, þar af voru 403 settir í gæsluvarðhaldi. Í fyrra voru 420 handteknir og 310 settir í fangelsi.
Samkvæmt saksóknaraembætti Parísar, þá voru „125 manns handteknir í nótt“ sem gaf til kynna að þeim hafði ekki verið tilkynnt um neina íkveikjur ökutækja. Þeir handteknu voru ákærðir fyrir ofbeldi og ásetning um að fremja ofbeldi eða vinna skemmdarverk.
Í úthverfinu Bagnolet kom ungur maður á sjúkrahús með fjögur skotsár. Á sama tíma, í úthverfinu Trappes, endaði maður sem var „kunningi lögreglunnar“ á bráðamóttöku eftir að hafa verið skotinn í fótinn.
Í Rezé (Loire-Atlantique) var endurtekið ráðist með sprengiárásum á lögreglustöðina og 24 ökutæki voru brennd til ösku. Lögreglan í Strassborg greindi frá því að kveikt hafi verið í rúmlega 100 ökutækjum, um 30 handteknir og meira en 20 lögreglumenn hlutu minniháttar meiðsli.
Samkvæmt heimildum Le Figaro réðst 100 manna hópur „á lögreglumenn í Rennes með sprengjuvörpum og skotfærum og særðu óeirðarlögreglumann.“
Notkun flugeldasprengja útbreidd um allt Frakkland.
Í Buchelay í Yvelines-héraði voru tveir 17 ára unglingar handteknir þegar þeir seldu 389 sprengjur í trássi við lög. Í Trappes, Guyancourt, Mantes-la-Ville og jafnvel í neðanjarðarlestinni í París gerði lögreglan fjölda flugelda upptæka frá unglingum, sumum niður í 15 eða 16 ára. Í Chelles (Seine-et-Marne) missti 12 ára gamall drengur þrjá fingur eftir að hafa kveikt á flugeldatertu.
Í Lyon voru margir handteknir vegna notkunar flugelda. Engin meiðsli voru tilkynnt, samkvæmt Le Progress. Rhône-héraðið var að sögn rólegra miðað við fyrri ár, sem gæti tengst eflingu lögreglunnar í 800 lögreglumenn. Alls voru um 15 manns handteknir og kveikt var í 80 bílum ásamt tugum ruslatunna um allt stórborgarsvæðið Lyon.
Þeir handteknu voru kærðir fyrir notkun flugelda, vörslu fíkniefna, skemmdarverk, vopnað eða alvarlegt ofbeldi, synjun á að hlýða fyrirmælum, fyrir að kveikja í ruslatunnum eða hindrunum og stela símum.
Lögreglan í París handtók einnig 10 manns fyrir að hafa í fórum sínum gáma með köfnunarefnisoxíði samkvæmt saksóknaraembættinu. Köfnunarefnisoxíð hefur notið vaxandi vinsælda sem eiturlyf og hafa lög verið sett til að takmarka notkun þess og sölu vegna hættu á alvarlegum taugaskaða.
Alvarlegri ofbeldisatvik voru einnig tilkynnt, í Marseille var 36 ára gamall alsírskur maður stunginn fimm sinnum áður en hann lést á La Timone-sjúkrahúsinu. Samkvæmt heimildum Le Figaro réðst hópur „hettuklæddra einstaklinga vopnaðir hnífum, táragasi og kylfum“ á manninn.
