Efnahagskerfi glæpahópanna komið í 5,5% af þjóðarframleiðslu Svíþjóðar

Lögreglan í Svíþjóð boðaði til blaðamannafundar til að kynna nýja skýrslu (sjá pdf að neðan) um útbreiðslu áhrifa glæpahópanna í Svíþjóð. Ekki nóg með að stríð hópanna drepi saklausa Svía og eyðileggi hús þeirra í sprengju- og skotárásum, þá eru hóparnir komnir með svo umfangsmikinn fyrirtækjarekstur að hann veltir 5,5% af þjóðarframleiðslu Svía, 352 milljörðum sænskra króna. Af þeim er ríflega helmingur eða 185 milljarðar skr. talinn vera hreinn gróði. Ríkislögreglustjóri Svíþjóðar, Petra Lundh sagði áhyggjufull að starfsemi glæpahópanna sé að eyðileggja Svíþjóð og núna verði allir að taka höndum saman til að reyna stöðva útþenslu glæpahópanna.

Aftonbladet greinir frá því að ríkislögreglustjórinn Petra Lundh hafi sagt:

„Það sem veldur áhyggjum er að þetta gegnumsýrir allt samfélagið, allar greinar.”

Glæpasérfræðingurinn Amir Rostami segir að með rannsókninni hafi verið farið í gegnum meira efni en áður og þá hafi komið í ljós að stærð vandans var miklu meiri en yfirvöld höfðu áður gert sér grein fyrir. Fyrri hugmyndir voru minni en helmingur af vandamálinu. Skýrslan deilir inn glæpahagkerfinu í fjóra þætti: Svarta hagkerfið, ólöglegi efnahagurinn, þjónustu milli glæpamanna og peningaþvottur. Talið er að eiturlyfjaviðskipti, vopnasmygl, búðaþjófnaður, fölsun vara og önnur starfsemi í ólöglega hagkerfinu gefi gróða upp á 41 milljarða sænskar kr. árlega.

Svarta hagkerfið er stærst. Um er að ræða svarta vinnu, þar sem enginn skattur er greiddur eða atvinnurekendagjöld. Hér er reiknað með að hagnaðurinn einn sé um 96 milljarðar sænskar kr árlega. Bótasvindl, svindl gegn ríkinu, gegn ESB og einstaklingum er reiknað með að skapi hagnað um 39 milljarða sænskar kr árlega.

Ríkislögreglustjórinn andvarpar og segir:

„Við getum sett hversu marga sem helst í fangelsi, það koma bara nýir í staðinn allan tímann.”

Fara efst á síðu