Það hefur komið á daginn að árásirnar á ICE lögreglu útlendingastofnunar Bandaríkjanna í Minnesota voru þaulskipulagðar. Líklega er um skipulögð viðbrögð að ræða til að reyna að dylja spillingamálin sem skekið hafa Minnesota vegna svindls Sómala sem mokað hafa inn peningum frá bandaríkjastjórn til leikskóla og dagvistunarheimila, þar sem engin starfsemi fór fram.
Íris Erlingsdóttir fjölmiðlafræðingur býr í Minnesóta og fylgist vel með fréttum þar. Hún ræddi þessi mál ásamt Eldi Smára Kristinssyni í síðasta þætti Ísafoldar. Konan sem lét lífið var leiðtogi baráttu til að hindra störf lögreglunnar sem meðal annars leitar uppi ólöglega innflytjendur til að senda úr landi. Reyndi hún meðvitað að keyra á einn lögreglumanninn og hefði getað orðið honum að bana en hann skaut hana í sjálfsvörn, þannig að hún dó undir stýri.
Íris sendi meme og teikningu ásamt myndskeiðum og umræðum um málið á Youtube sem sjá má hér að neðan.

