Lars Bern og Mikael Willgert ræða Úkraínustríðið í þættinum Umhverfisgreiningu á Swebbtv. Lars Bern segir að drónaárás Úkraínu sem ætlað var að myrða Pútín hafi mistekist algjörlega, Rússarnir skutu niður alla 91 dróna í árásinni. Lars Bern segir að Bandaríkin leiki tveimur skjöldum, þeir veiti Úkraínu aðstoð til að ráðast á Rússland með kóðum og hernaðarupplýsingum meðal annars frá gervihnöttum sínum samtímis og Bandaríkjaforseti leiði friðarviðræður við Rússland. Hann telur að Trump hljóti að vera meðvitaður um þátttöku Bandaríkjanna í Úkraínustríðinu en kjósi að leika „góðu lögguna.“ CIA er þungamiðjan og spurning, hvort forsetann skorti stjórn á stofnuninni.
„Pútín var ekki á staðnum, þegar árásin var gerð og Rússarnir greinilega við öllu búnir sem bendir til þess að þeir hafi verið að sannreyna Bandaríkjamenn og lagt fyrir þá gildru. Einhver háttsettur Rússinn hefur lekið því til háttsettra Bandaríkjamanna, að Pútín yrði á staðnum á þessum tíma til að sannreyna hvað myndi gerast. Svarið var drónaárás en Pútín var víðs fjarri. Það er ekki hægt annað en að draga þá ályktun að Bandaríkjamenn hafi í samráði við Úkraínu gert tilraun til að ráða Pútín af dögum og þetta hefur að sjálfsögðu eitrað afstöðu Pútíns til Bandaríkjanna.“
Hann telur að Úkraína séð háð upplýsingum úr gervihnöttum Bandaríkjamanna og bandarískir herforingjar og CIA komi nauðsynlegum upplýsingum til Úkraínumanna svo þeir geti miðað á olíustöðvar og orku- og hernaðarmannvirki og núna á viðverustað Pútíns í þessari drónaárás. Bandaríkin hafa því alls engan áhuga á að binda enda á stríðið í Úkraínu að mati Lars Bern. Vegna þess að þeir hefðu getað gert það, en gera það ekki. Úkraínsku átökin virðast vera hluti af langtímaáætlun um að skaða Kína. Og „heimsku stjórnmálamennirnir“ í Evrópu láta nota sig í þessum tilgangi, sem hefur hörmulegar afleiðingar fyrir alla Evrópu.
Lars Bern telur að Bandaríkin hafi í raun engan áhuga á að binda enda á stríðið. Í staðinn leika þeir tvöfaldan leik sem miðar að því að veikja Rússland og síðar einnig Kína. Og þeir nota Úkraínu og Evrópu til þess að framkvæma þetta. Lars Bern segir:
„Þeir leikstýra þessu. Ég hef orðið sífellt sannfærðari um að Úkraínuátökin séu hluti af langtímaáætlun um að ráðast á Kína. Kína hefur Akkilesarhæl og það er skortur á nægilega mikilli framleiðslu á eigin orku. Kína er ekki sjálfstætt. Og það sem gerir okkur kleift að halda áfram óhindrað er náið samband við Rússland. Rússland sér þeim fyrir olíu og gasi. Bandaríkin munu reyna á ýmsa vegu að raska rússneska orkuiðnaðinum þannig að Rússland verði óáreiðanlegur birgir Kína.“
„Ég held ekki að Bandaríkjamenn hafi minnsta áhuga á að binda enda á stríðið í Úkraínu. Það er mín niðurstaða. Þetta er bara sýndareikur. Og þessir heimsku stjórnmálamenn sem við höfum í Evrópu láta nota sig. Þeir láta þessi heimsvaldaöfl stjórna evrópskum stjórnmálum. Og það er hörmung fyrir Evrópu.“
Mikael Willgert lýsir vonbrigðum með ástandið:
„Svo þetta snýst þá um yfirráð á heimsvísu. Það mætti kalla það tilgátu, en það er mikil vonbrigði að stríðinu sé ekki lokið, þótt Bandaríkin gætu lokið því.“
Lars Bern svarar:
„Bandaríkjamönnum er alveg sama þótt Evrópa fari til fjandans. Þeim er alveg sama um allar þær milljónir Úkraínumanna sem hafa látist. Þeir hafa eyðilagt allt landið. Heimsku stjórnmálamennirnir okkar munu senda unga sænska menn til Úkraínu til að vera drepnir, ef þetta heldur áfram.“
