Grænland – heitasta eyjan á plánetunni

Ekki vantar ímyndunaraflið eða tillögur til að leysa „Grænlandsdeiluna. Vinstri menn bjóða sig fram til að verja Grænland með herafla eins og Starmer í Bretlandi og Magdalena Andersson í Svíþjóð á meðan aðrir hafa hentugri lausnir sem kalla á minna ofbeldi. Þannig leggur „miss White á X til að Isabella prinsessa Danmerkur giftist yngsta syni Donald Trumps, Barron Trump, því slíkt konunglegt ástarsamband myndi leysa Grænlandskrísuna á augabragði.

Fyrrverandi Fox-News stjarnan Megynn Kelly vekur athygli á þessari sérstöku lausn á X:

Kratar ESB hlaupa til varnar „yfirráðasvæði ESB og bjóða fram her Svíþjóðar og Bretlands svo Trump hinn hryllilegi fái ekki Grænland, þótt hann hafi þegar í dag herlið á Grænlandi:

Sir Richard Shirreff spyr hvern Starmer haldi eiginlega að hann eigi við að etja?:

Thomas C. Theiner skrifaði í fyrra um ástand breska hersins:

Býður fram sænskan her á Grænlandi

Magdalena Andersson, formaður sósíaldemókrata í Svíþjóð sem íslenskir jafnaðarmenn líta á sem sinn guð, sagði á öryggisráðstefnu í Svíþjóð nýlega að hún styddi tillögu ungra sósíaldemókrata að beina því til ESB að senda herlið til Grænlands til að hræða Bandaríkin og Donald Trump forseta frá því að komast yfir eyjuna. Sagðist hún vera fylgjandi aukinni hernaðarlegri nærveru á Grænlandi sem að sjálfsögðu ætti við um sænska hermenn.

Fara efst á síðu