Umræðan geisar um á hvaða vegferð skrímslið er sem búið er að koma sér fyrir í Brussel, þúsundir búrókratar, útblásið skriffinnsku- og reglugerðarfarganskerfi, fjármagns og pólitískt valdakerfi sem leggur alla álfuna undir sig.
Ólafur Ragnar Grímsson fyrrverandi forseti Íslands ræðir um málið og líkir ástandinu við pólitísk trúarbrögð sem minna á valdakerfi gamla kommúnismans í Sovétríkjunum. Hann er gjörkunnugur málum og fylgist mjög vel með í heiminum eins og fram kemur einnig á youtube myndbandi að neðan.
Inn í þetta alræðismyrkur vill ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokk fólksins leiða þjóðina í og vonast til að fá sæti við borðið eins og það er kallað. Það verður ekki þjóðin sem sest við borðið heldur fólkið sem ESB verðlaunar fyrir að koma Íslandi með auðlindum sínum til sjávar og sveita undir yfirráð ókjörinna embættismanna erlendis.
Eina leiðin fyrir þjóðina að stöðva þessa vegferð er að segja svo myndarlegt NEI í komandi ESB-kosningum að keyptir, svikulir stjórnmálamenn þora ekki að taka upp málið að nýju.
