Fréttaflass til RÚV: Hezbollah er ekki “hreyfing”

Hezbollah eru hryðjuverkasamtök

Maður hefði haldið að erlend frétt númer eitt í gær, sunnudaginn 31. maí, hefði verið óeirðirnar í París á laugardag eftir; a.m.k. einn látinn og nærri 800 manns handteknir.

Ekki á RÚV, þar sem fyrsta erlenda fréttin var þessi: “Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur boðað til neyðarfundar á morgun, mánudag, vegna aukinnar aðgangshörku Ísraelshers í Líbanon…

Skilaboð „fréttar” RÚV –  sem ekki er fjölmiðill og enn síður „frétta”stofa, heldur marxísk áróðurspípa sem hatar Ísrael og Gyðinga – eru þau að Ísrael sé bara að gamni sínu að sprengja Líbanon í loft upp algjörlega að ástæðulausu, en ekki vegna þess að Hezbollah „ber ábyrgð á ofbeldi og sprengjuárásum á Ísrael” og gegn vestrænum borgaralegum skotmörkum víða um heim. Þetta er ekkifrétt RÚV varðandi málið: „Hezbollah-eldflaugar sprengja verslunarmiðstöð í Kiryat Shmona. Á örfáum sekúndum breyttist venjulegt kvöld í sírenur, skelfingu og kapphlaup um að komast í skjól. Allt á meðan vopnahlé á að vera í gildi.“

Síðasta setning RÚV „fréttarinnar” er þessi: „Ísraelsstjórn segir atlögunum beint að innviðum Hezbollah-hreyfingarinnar.

Hreyfingarinnar.

Hér er fréttaflass til RÚV: Hezbollah er ekki „hreyfing.” Hezbollah er hryðjuverkasamtök: „Hezbollah (,Flokkur Guðs’) er sjía-múslimsk samtök með aðsetur í Líbanon. Hópurinn nýtur stuðnings Írans, er knúinn áfram af ofbeldi og harðri andstöðu við Ísrael og andspyrnu gegn Vesturlöndum. Hezbollah ber ábyrgð á ofbeldi og sprengjuárásum gegn Ísrael og vestrænum borgaralegum skotmörkum víða um heim.

Hezbollah eru talin hryðjuverkasamtök af Bandaríkjunum og mörgum öðrum ríkjum og eiga hernaðarlegt samstarf við við kúgandi, and-ísraelsk stjórnvöld í Íran og Sýrlandi. Vopnuð átök yfir landamærum milli Hezbollah og Ísraels hafa færst í aukana á undanförnum árum, sérstaklega eftir árás Hamas hryðjuverkasamtakanna 7. október, 2023, þegar Hamas myrti yfir 1.200 ísraelska borgara.”

Þjóðir sem skilgreina Hezbollah sem hryðjuverkasamtök eru Bandaríkin, Kanada, Bretland, Ástralía, Nýja Sjáland, Þýskaland, Holland… listinn er miklu lengri, en reyndar er einfaldara að bara benda á þjóðirnar sem ekki skilgreina Hezbollah sem hryðjuverkasamtök: Íran, Kína, Rússland.

Aðeins þarf að skoða myndbönd/myndir frá óeirðunum í París til að sjá að hvað óeirðaseggirnir eiga sameiginlegt: Þeir eru flestir ungir, óhvítir karlmenn. Það útskýrir hvers vegna þetta er ekkifrétt á RÚV.

Að RÚV skuli fá að spúa andlýðræðislegum lygum yfir landsmenn dag eftir dag á kostnað skattgreiðenda er mesta hneyksli í sögu íslensku þjóðarinnar.

Íris Erlingsdóttir, fjölmiðlafræðingur