Það er siður einræðisherra að drepa sendiboðann með slæmu fréttirnar. Ríkisstjórn Kristrúnar verður ekki sökuð um það bókstaflega en hins vegar siðferðislega því bæði Samfylkingin og Viðreisn hata Morgunblaðið og hafa málað upp íslenska sjómenn sem alræmdasta óvin sinn enda Morgunblaðið málsvari þeirra að sögn.
Morgunblaðið er ekki einungis málsvari sjómanna. Heldur einnig bænda, athafnamanna, hátt sem lægri settra og yfirleitt allra stétta manna og kvenna á Íslandi. Þetta er elsta blað allra landsmanna og heldur uppi öflugum umræðum um þjóðmálin og þá sérstaklega upplýsandi umræðu um Evrópusambandið og ókosti þess að Íslendingar gangi í sambandið.
Það er einmitt orsökin fyrir því að forsætisráðherrann neitar að mæta í viðtal hjá Stefáni E. Stefánssyni. Önnur ástæða er eflaust sú að Stefán kann að spyrja óþægilegra spurninga án þess þó að vera móðgandi enda maðurinn einstaklega prúður og kurteis. Í síðasta þætti með Guðrúnu Hafsteinsdóttur og Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni sást þetta skýrt, því ekki stakk spyrjandinn óþægilegu spurningunum undir stól hvorki við formann Sjálfstæðisflokksins né Miðflokksins. Enda urðu umræðurnar um stóru, þungu málin afskaplega greinargóðar svo langt sem mögulegt var og góður grundvöllur fyrir báða formennina að virkilega leggja fram skoðanir sínar.
Kristrún Frostadóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir syngja um það frá morgni til kvölds að þær treysti þjóðinni. Hins vegar eru athafnir þeirra í Brussel svo svakalegar að þjóðinni er ekki treystandi fyrir vitneskju um hvað þær hafa verið að bralla og öll gögn læst í myrkri kompu á Alþingi. Jafnvel þingmönnum er ekki treystandi að fara inn með penna eða blað, hvað þá snjallsíma með ljósmyndavél og látnir sverja þess eið að segja engum lifandi manni frá hvað fyrir augum bar.
Að sniðganga hefðbundna fjölmiðla er trix fasista, kommúnista, nazista og allra handarinnar ista sem þola ekki málfrelsið. Sem þola ekki að til eru aðrar hliðar á málum en einræðisherrarnir sjálfir ákveða að sé hinn eini stóri sannleikur. Enginn vissi þetta betur en áróðursmeistari Hitlers, Göbbels sem sagði: Segið lygina nógu oft, þangað til að fólk fer að trúa henni.
Ef að ríkisstjórnin hefði hreint mjöl í pokahorninu myndu valkyrjurnar að sjálfsögðu mæta í viðtal hjá Stefáni í Spursmálum og svara spurningum hans. Þær gætu þá útskýrt málstað sinn og mætt mörgum rökum þjóðarinnar sem Stefán setur fram.
En nei, ekki heilaþvegnar ESB kerlingar sem eru í lögleysisferð fyrir hönd ókjörinna umbjóðenda sinna í Brussel. Kristrún komin í klúbb ungra leiðtoga glóbalista og Þorgerður Katrín sem segir eins og Loðvík 14.: „L’État, c’est moi“ Ég er ríkið! Kannski fær hún hirðmálara framkvæmdastjórnarinnar í Brussel til að mála af sér málverk í stíl sólarkonungsins sem hengja má utan á Hörpu nákvæmlega á þeim stað, þar sem forsetinn vildi láta hengja upp kolefnismæli andrúmsloftsins.
Fylgist með Stefáni. Hann er talsmaður einstaklings- og málfrelsis sem er öllum kært nema meintum ofangreindum valkyrjum.
