Vofa Dags B. gengur ljósum logum í Ráðhúsi Reykjavíkur

Hlutirnir gerast hratt þessa dagana. Nýafstaðnar sveitastjórnarkosningar og afgreiðsla ólögmætrar tillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst afgreidd frá Alþingi. Nafnarnir Gústaf Skúlason og Gústaf Níelsson ræða þessa atburðarríku daga í þessum nýja þætti Þjóðólfs. Gústaf Níelsson sagði að vofa Dags B. Eggertssonar gangi ljósum logum í Ráðhúsi Reykjavíkurborgar, þar sem Sjálfstæðisflokkurinn hefði gengið til samstarfs við tvær fyrrverandi hækjur Dags. B. í borginni.

„Það var ákall kjósenda að breyta til, að koma þeim frá sem skapað hafa þessi vandamál hjá borginni. En í staðinn fyrir að gera það ákveður Sjálfstæðisflokkurinn að ganga til samstarfs við hækjur Dags B. Eggertssonar fyrrverandi borgarstjóra.”

Gústaf Níelsson spáir því, að fylgið muni hrynja af Sjálfstæðisflokknum og búast megi við því að Miðflokkurinn sópi til sín yfir 30% atkvæða í næstu alþingiskosningum. Hann segir að margir trúir Sjálfstæðismenn muni senda flokknum með söknuði hið sígilda lag Jim Reeves: Adios Amigo.

Báðir voru nafnarnir sammála um það að hin svikula ESB-ríkisstjórn beiti þjóðina blekkingum varðandi þjóðaratkvæðagreiðsluna sem búið er að ákveða að halda 29. ágúst. Verið er að dylja það fyrir kjósendum að umsóknarríki verður að ganga að kröfum ESB og aðlaga sig þeim til að flytja fullveldi þjóðarinnar til Brussel.

„Alþingi verður eins og héraðsþing ef Ísland gengur með í ESB. Til hvers var þá barist ef þjóðin á að láta frá sér auðlindir sínar og örlög í hendur erlendra manna sem enginn hefur kosið og stefna að nýju Sovétríki í allri Evrópu?” spyr Gústaf Níelsson.

Það er einnig lúalegt bragð að halda kosninguna strax eftir sumarfrí eða jafnvel þegar margir eru enn í sumarfríi. Allt með klækjabrögðum úthugsað svo fólk eigi ekki að geta kynnt sér málið og verði því háð þeim aðila sem sterkastur er í að básúna út boðskap sínum. Gústaf Níelsson gagnrýnir leynimakk ríkisstjórnarinnar:

„Og svo er búið að loka inni gögn sem sýna meðal annars hvað forráðamenn landsins hafa verið að gera á leynifundum í Brussel. Þetta er svo leynilegt að loka verður gögnin inni í læstu herbergi í Alþingi og þeir þingmenn sem fá að sjá gögnin eru bundnir þagnarheiti að segja ekki frá þeim! Hvernig haldið þið að yfirvöld komi þá fram við almenning fyrst svona er farið með þingmenn?!”

Smelltu á spilarann hér að neðan til að hlusta á umræðurnar: