Pólskur ráðherra fordæmir „sturlaða“ loftslagsstefnu ESB

„Græn“ stefna ESB er uppskrift að hörmungum

Sífellt fleiri sjá og skilja að hin sjálfseyðandi umhverfisstefna sem kemur frá Brussel er á leiðina í ruslafötuna, þegar ráðherrar í frjálslyndri ríkisstjórn Póllands undir forystu Donalds Tusk forsætisráðherra gagnrýna hana opinberlega.

Tusk var kjörinn með skýrt umboð til að færa Pólland nær Evrópusambandinu eftir að íhaldsflokkurinn Lög og réttlæti (PiS) sem hafði staðið gegn alþjóðahyggjunni á mörgum sviðum tapaði kosningum.

En núna kemur það í ljós að Evrópusambandið hefur færst svo langt í róttæka átt að jafnvel frjálslyndir stuðningsmenn Donalds Tusk eiga erfitt með að sætta sig við stefnuna.

ESB-sinnaði miðillinn POLITICO hélt ráðstefnu um orku- og loftslagsmál í Brussel í dag, þar sem Krzysztof Bolesta, aðstoðarráðherra loftslags- og umhverfismála í Póllandi, sagði að ESB „færi of hratt“ í áætlunum sínum um að draga úr kolefnislosun þungaiðnaðar.

Politico greinir frá:

„Hraðinn sem Evrópusambandið krefst þess að iðnaðurinn dragi úr kolefnislosun samkvæmt losunarviðskiptakerfinu (ETS) er ‘sturlaður’, að mati aðstoðarráðherra loftslags- og umhverfismála í Póllandi, Krzysztof Bolesta. Hann sagði:

[…] Þetta er sturlað. Og þetta snýst ekki bara um eina atvinnugrein heldur margar. Að mínu mati er þetta mál sem við verðum að breyta. Núverandi stefna gefur ESB siðferðilega yfirburði, en við munum ekki eiga neinn iðnað eftir.“

Ursula von der Leyen er undir síaukinni pressu frá atvinnurekendum sem segja græna svindlið vera að ganga af heilu iðngreinunum dauðum.

Endurskoðun á losunarviðskiptakerfi ESB (ETS) er fyrirhuguð í júlí og búist er við að framkvæmdastjórn ESB muni heimila iðnaðinum meiri losun koltvísýrings en áður var ráðgert. Ástæðan er þrýstingur frá atvinnulífinu og fjölmörgum aðildarríkjum sem hafa varað við áhrifum núverandi stefnu á samkeppnishæfni evrópsks iðnaðar. Bolesta, sem starfaði áður í orkumáladeild framkvæmdastjórnar ESB áður en hann hóf þátttöku í pólitík í Póllandi, sagði:

„Ég hef átt ótal samtöl víða um heim við fólk úr atvinnulífinu sem hefur spurt: „Hvað eruð þið að gera? Þetta er sturlað. Hvað eruð þið að gera með þessi viðmið og þessa loftslagsstefnu gagnvart iðnaðinum?“

Wopke Hoekstra, framkvæmdastjóri ESB í loftslagsmálum, hefur þegar gefið til kynna að framkvæmdastjórnin sé opin fyrir því að framlengja tímabilið þar sem iðnfyrirtæki fá ókeypis losunarheimildir.

Hann hefur þó gefið í skyn að slíkt kunni að verða bundið ákveðnum skilyrðum fyrir evrópskan iðnað, til dæmis að fyrirtækin sýni fram á að þau séu að fjárfesta í að draga úr kolefnislosun í framleiðsluferlum sínum.