Bartoszek-blekkingin

Í Morgunblaði dagsins er grein eftir undirritaðan um þá vísvitandi blekkingu sem formaður utanríkisnefndar Alþingis, Pawel Bartoszek. leyfir sér að dreifa opinberlega. Í grein í Morgunblaðinu þann 18. maí s.l. reiknar Bartoszek upp löndin Írland, Bretland, Noreg, Danmörku, Svíþjóð, Finnland og Grænland sem dæmi um lönd sem kosið hafa um viðræður í stað ESB-aðildar.  

„Nú er einfaldlega komið að því að Íslendingar fái að taka slíka ákvörðun“ skrifar hann og gefur í skyn að hin ólögmæta þjóðaratkvæðagreiðsla í ágúst fjalli um eitthvað annað en aðildarumsókn Íslands að ESB.

Í engum af þessum né öðrum tilvikum var verið að kjósa um viðræður. Einföld samantekt yfir kosningar í þessum löndum sýnir að Pawel Bartoszek fer vísvitandi með rangt mál þegar hann gefur til kynna að kosið hafi verið um viðræður í þessum löndum í stað aðildar.

Blekking núverandi ríkisstjórnar er einmitt að fela fyrir kjósendum að atkvæðagreiðslan fjallar um að Ísland er að sækja um aðild að ESB. Eðlileg spurning væri því: „Vilt þú að Ísland gangi með í ESB?“ Öllum er ljóst að Ísland er að sækja um aðild. Að viðræðurnar snúist um eitthvað annað er bragð til að blekkja íslenska kjósendur í gildru ESB.

Inn mátt þú ganga – töpuð er sálin

„Inn mátt þú ganga, töpuð er sálin“ var forskrift Svartaskóla og missti Sæmundur fróði kápuna sem kölski greip í þegar honum tókst að komast úr skólanum.

Eina leiðin fyrir þjóðina til að sleppa áður en hurðin skellur í lás er að kjósa nei í komandi kosningum.