Fer með þjóðina beint að altari dauðans

Sá sem ríður hesti dauðans, þarf ekki að spyrja um sáttmála fólks eins og til að mynda stjórnarskrá og aðrar skyldur sem framkvæmdavaldinu er ætlað að fylgja eftir. Með samþykki sínu um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild að ESB hefur ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttir barið sleggjunni svo hriktir í grunni sjálfs lýðveldisins Íslands. Nú skal þjóðin á hnjánum inn í ESB. Það eina sem til þar er JÁ í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu.

Utanríkisráðherrann í hlutverki djáknsins á Myrká reiðir fjallkonuna að baki sér upp að altari dauðans, þar sem fyrirhuguð gifting Íslands við ESB fer fram. Ekki verður aftur snúið nema að þjóðin segi svo hátt NEI að alheimur taki eftir.

Teningunum er kastað.

Ísland er í pottinum.