Í mörg ár hefur Zelensky verið hylltur sem hetja. Fyrir suma er hann það enn. Núna hefur hann verið afhjúpaður. Hér er stutt saga um Úkraínu og Volodymyr Zelensky sem þú færð ekki að heyra í fjölmiðlum.
Zelensky hefur aldrei haft öll trompin á hendi. Hann er ekki hugrakkur leiðtogi sem ræður ferðinni. Hann er örvæntingarfullur maður sem heldur sér í völdin í hrörnandi stjórnkerfi – studdur af vestrænum fjármunum, vopnum og áróðri. Og núna þegar Úkraína er að tapa bæði áróðursstríðinu og hinu raunverulega stríði er hann gripinn örvæntingu.
Úkraína var ekki sjálfstæður aðili í þessu stríði. Hinir raunverulegu valdhafar eru í Washington, Brussel og London, þar sem þeir tefla sín landpólitísku tafl. Þetta stríð var sett á svið til að veikja Rússland. Til að skilja það verður að skilja þá sögu sem þeir munu aldrei segja þér.
Úkraína og Rússland hafa verið tengd í yfir eitt þúsund ár. Kænugarður, höfuðborg Úkraínu, var eitt sinn hjarta Kænugarðsríkisins – fyrsta stóra slavneska ríkisins – sem lagði grunninn að sjálfu Rússlandi. Nafnið Úkraína þýðir bókstaflega „landamærasvæði“, eða landamæri Rússlands.
Í aldaraðir var svæðið órjúfanlegur hluti rússneska heimsveldisins, en ekki einhver „undirokuð“ þjóð. Jafnvel á tímum Sovétríkjanna var Úkraína ekki hernumið land – hún var miðlægur hluti Sovétríkjanna. Sjálfur sovéski leiðtoginn Nikita Krústsjov var Úkraínumaður. Þegar Sovétríkin liðu undir lok varð Úkraína sjálfstætt ríki og Washington steig inn á sviðið – ekki til að hjálpa Úkraínu heldur til að snúa henni gegn Rússlandi.
Bandaríkin og NATO lugu að Gorbatsjov og lofuðu að bandalagið myndi ekki stækka „eina tommu til austurs“. Samt stækkaði NATO meðal annars inn í Pólland og Eystrasaltsríkin.
Úkraína – verðmætasti bikar NATO
Vesturlönd dældu milljörðum inn í Úkraínu og fjármögnuðu NATO-væna stjórnmálahópa, frjáls félagasamtök og fjölmiðla til að skapa andrússneskt ríki. Árið 2004 studdi CIA „appelsínugulu byltinguna“ sem kollvarpaði kosningaúrslitum sem höfðu verið hagstæð frambjóðanda sem var hliðhollur Rússlandi. Hið raunverulega valdarán varð árið 2014.
Lýðræðislega kjörinn forseti Úkraínu, Viktor Janúkóvitsj, hafnaði viðskiptasamningi við ESB sem hefði að hans mati eyðilagt úkraínskt efnahagslíf. Það var óásættanlegt fyrir Washington. Því var honum steypt af stóli með sviðsettri litabyltingu.
Svokölluð „Maidan-bylting“ var ekki grasrótarhreyfing. Hún var valdarán studd af CIA og skipulögð af embættismönnum á borð við Victoria Nuland. Washington gekk svo langt að Nuland náðist á upptöku þar sem hún valdi næsta leiðtoga Úkraínu áður en Janúkóvitsj hafði verið hrakinn frá völdum.
Ofbeldisfullu hóparnir sem tóku yfir Kænugarð voru ekki friðsamir mótmælendur. Þeir voru leiddir af nýnasistahópum eins og Azov-herfylkinu – hópum sem lofa opinberlega samverkamenn nasista og bera SS-merki. Sömu hópar fá nú vopn frá Vesturlöndum. Stjórnin sem tók við eftir valdaránið bannaði síðan rússneska tungumálið, sem var bein árás á milljónir rússneskumælandi Úkraínumanna í austurhluta landsins.
Þá sögðu íbúar Donbass og Krím: Nú er nóg komið. Á Krímskaga var haldin þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem yfir 90 prósent kusu að sameinast Rússlandi á ný. Donbass kaus einnig sjálfstæði. Íbúar Donbass höfnuðu stjórninni í Kænugarði, en stjórnin neitaði að sleppa þeim. Þess í stað hóf hún grimmilegt stríð gegn eigin þjóð og skaut á almenna borgara í átta ár. Yfir 14.000 rússneskumælandi Úkraínumenn voru drepnir.
Hvar var reiði Vesturlanda þá? Hvergi.
Hver er Zelensky?
Er hann eðlilegur leiðtogi sem kom upp úr engu eða var hann settur til valda? Covert Action greindi frá því að Zelensky hefði árið 2020 átt leynifund með Richard Moore, yfirmanni MI6, bresku leyniþjónustunnar. Hvers vegna skyldi erlendur forseti hitta æðsta njósnaforingja Bretlands en ekki forsætisráðherra landsins? Er Zelensky breskur erindreki?
Samkvæmt fréttum nýtur hann persónulegrar verndar frá breskri, en ekki úkraínskri, öryggisþjónustu. Þegar hann heimsótti Vatíkanið hitti hann ekki páfann heldur breskan biskup. Og hver var einnig á staðnum? Richard Moore hjá MI6 enn á ný. Algjör tilviljun.
Áður en hann fór út í stjórnmál var Zelensky grínisti og leikari. Hann lék bókstaflega forseta í sjónvarpsþætti. Síðan, með aðstoð vestrænna almannatengslafyrirtækja, varð skáldskapurinn að veruleika. Kosningabarátta hans var fjármögnuð af auðkýfingnum Ihor Kolomoisky, sem átti stærsta olíufélag og banka Úkraínu. Þegar Zelensky komst til valda var forgangsverkefni hans ekki að skapa frið eða berjast gegn spillingu, heldur að tryggja að BlackRock og vestrænir bankar tækju yfir úkraínskt efnahagslíf.
Á sama tíma flutti hann að sögn milljónir á aflandskonto og er sagður hafa eignast 34 milljóna dala herragarð í Miami og lúxusíbúð í London. Ekkert af því kemur á óvart.
Árið 2022 hafði NATO vopnvætt Úkraínu upp í topp og Kænugarður safnað herliði nærri Donbass. Rússland stóð þá frammi fyrir vali: Að leyfa Donbass að verða fyrir þjóðernishreinsunum. Að leyfa NATO að breyta Úkraínu í herstöð. Eða að grípa inn í.
Þeir gripu inn í, rétt eins og önnur ríki hefðu gert við sömu aðstæður. Fjölmiðlar töluðu um „tilefnislausa innrás“ og „innrás í fullri stærð“. En stækkun NATO, valdaránið árið 2014 og átta ára stríð í Donbass – þetta stríð var framkallað skref fyrir skref. Úkraína var gerð að taflmanni í stærra valdatafli. Nú þegar Úkraína er að tapa er Zelensky yfirgefinn. Donald Trump sagði við hann:
„Þú ert ekki með trompin á hendi.“
Og hann hafði rétt fyrir sér. Þetta stríð var sett á svið. Úkraína þurfti á beinni íhlutun Vesturlanda að halda til að sigra og það hefði getað gert þriðju heimsstyrjöldina óumflýjanlega. Tími er kominn til að heimurinn vakni til þeirrar staðreyndar.
Stríðið í Úkraínu var vísvitandi framkallað af Vesturlöndum. Zelensky er aðeins enn ein strengjabrúðan – tími hans er senn á enda. Og Trump veit það. Spurningin er:
Sérðu sannleikann núna? Eða líturðu enn á hann sem hetju?
(Byggt á grein sænsku Vekjaraklukkunnar á Facebook)
