Sjálfstæðisflokkurinn endurtekur sömu mistök í Reykjavík eins og flokkurinn gerði á landsvísu, þegar Bjarni Benediktsson myndaði ríkisstjórn með Vinstri grænum og gerði Katrínu Jakobsdóttur að forsætisráðherra. Eftir bankahrun féll fylgi flokksins frá 36,6% sem flokkurinn fékk ár 2007 niður í 23,7% í kosningunum 2009. Dýfan í kosningunum 1987 var eftir að Þorsteinn Pálsson tók við formannskeflinu úr höndum Geirs Hallgrímssonar en Davíð Oddsson tók við keflinu 1991 og fylgi flokksins fór sem hæst í 40,7% ár 1999. Eftir hrun hefur flokkurinn aldrei náð sér á strik og vonir bundnar við Bjarna Benendiktsson brustu, þegar hann skilaði flokknum undir 20% markinu sem var í raun verðskulduð rassskelling vegna afstöðu leiðtogans til embættisskipunar ríkisins. Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttir og Bjarna Benediktssonar bar höfuðábyrgð á innleiðingu haturslaga, grænu lyginnar um að koldíoxíð sem er undirstaða lífs á jörðinni gegnum ljóstillífun sé eitruð lofttegund, og almenns kynjarugls í skólum og vinstra VÓK rugls í samfélaginu. Slík vegferð vekur ekki traust landsmanna og því hlaut flokkurinn aukið fylgi eftir að Bjarni hætti formennsku eins og sýndi sig í sveitarstjórnarkosningunum nýverið.

Það er þess vegna algjörlega misráðið af flokksforystunni í Reykjavík eftir góðan vind í seglin, nær 32% fylgi og endurnýjað traust kjósenda, að mynda meirihluta með þeim flokkum sem bera ábyrgð á því öngþveiti sem ræður í Reykjavík í samgöngumálum og skipulagsmálum, þéttingu byggðar og svo framvegis. Það er alfarið misráðið og ber vott um ótrúlegt pólitískt dómgreindarleysi að boða bæjarbúum lausn á vanda með samstarfi við það fólk sem skapaði vandann. Það fólk sem skapað hefur þennan vanda Reykvíkinga með óhóflegri skuldasöfnun, draumórum um borgarlínu og almennum leikaraskap Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Framsóknar og annarra vinstri manna; þessu fólki er ekki treystandi til að leysa vandann.
Notar störf í fyrirtækjum borgarinnar sem mútur
Annað sem ber vott um gróflega misboðna og gjörspillta afstöðu nýs borgarstjóra Hildar Björnsdóttur og veikir allt traust á að hún sé fær um að valda hlutverkinu, er að hún reynir að múta Ara Edwald oddvita Miðflokksins með stjórnarformannsstöðu Orkuveitu Reykjavíkur. Eflaust eru góð laun í boði og eflaust veldur Ari Edwald því verkefni. En að embætti borgarinnar séu veitt í pólitískum tilgangi til að kaupa aðra á þennan hátt er sami skilningur og vinstri menn hafa á opinberum embættum. Eða eins og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sagði í sjónvarpi nýlega: „Ég er ríkið.” Þetta er afstaða vinstri manna sem skilja ekki að stofnanir eru kostaðar af skattgreiðendum í þeim tilgangi að þjóna borgarbúum og landsmönnum en ekki þeirra einkastofnanir sem þeir geta gert hvað við sem þeim hentar.
Vonandi hefur Ari Edwalds bein í nefinu til að hafna þessu „gylliboði” Sjálfstæðisflokksins þar sem menn eru greinilega spældir yfir því að tveir borgarfulltrúar þeirra gengu nýlega til samstarfs við Miðflokkinn, þegar þeir sáu hvert stefndi með afstöðu forystu Sjálfstæðismanna í borginni.
Svik í umræðu um þjóðaratkvæðagreiðsluna – fjöldaúrsagnir úr Sjálfstæðisflokknum?
Það vekur spurningar að Sjálfstæðisflokkurinn hætti að taka þátt í umræðunni um þjóðaratkvæðagreiðsluna á þingi og lætur Miðflokkinn einan um að halda uppi andmælum. Það leiðir til spurningarinnar hvort Sjálfstæðisflokkurinn fylgi misgjörningi flokksins í Reykjavíkurborg í landsmálum og semji við Viðreisn um að vinna ekki með Miðflokknum eins og Viðreisn hefur lýst yfir. Önnur spurning sem vaknar er hversu heill flokkurinn er í andstöðu sinni við inngöngu Íslands í ESB. Menn eins og Björn Bjarnason sem hefur komið með ágætis innlegg varðandi klúðrið í ESB-kosningunni sem fyrirhuguð er í haust, hefur áður reynt að koma landinu undir löggjöf ESB með bókun 35. Guðrún Hafsteinsdóttir sem er einlæg í sínu formannsstarfi gæti þurft að kyngja mörgu af því sem hún hefur sagt og hefur skapað vonir og fært flokknum aukið fylgi ef Viðreisn verður boðið í Sjálfstæðisflokkinn.
Afleiðingarnar eru þegar farnar að koma í ljós. Jón Steinar Gunnlaugsson spáir flótta úr Sjálfstæðisflokknum:
„Með þessu hefur hún (Hildur Björnsdóttir/gs) misboðið þeim kjósendum sem kusu flokk hennar og tóku þar þátt í að fella fyrri meirihluta. Margir þeirra munu segja sig úr flokknum og ekki kjósa hann í næstu kosningum.”
Eftir á að koma í ljós hversu sannspár Jón Steinar mun reynast, en endurtekin mistök Sjálfstæðismanna veða ekki til þess að auka fylgi flokksins og munu sjálfstæðismenn leita annað, ef flokkurinn verður hégómlega upptekinn við eingöngu valdasetu.
Fylgi Sjálfstæðisflokksins frá 1971:
| Ár | Fylgi (%) |
|---|---|
| 1971 | 36,2 |
| 1974 | 42,7 |
| 1978 | 32,7 |
| 1979 | 35,4 |
| 1983 | 38,7 |
| 1987 | 27,2 |
| 1991 | 38,6 |
| 1995 | 37,1 |
| 1999 | 40,7 |
| 2003 | 33,7 |
| 2007 | 36,6 |
| 2009 | 23,7 |
| 2013 | 26,7 |
| 2016 | 29,0 |
| 2017 | 25,2 |
| 2021 | 24,4 |
| 2024 | 19,4 |
