Forráðamenn ESB hafa ætíð haldið því fram að ESB sé friðarbandalag. Á meðan við verslum hvert við annað, þá verður ekkert stríð, var sagt. En núna eigum við ekki að eiga viðskipti við Rússland, heldur fara í stríð gegn þeim. Með öðrum orðum, alveg hið gagnstæða. UM þetta var rætt Swebbtv (sjá að neðan).
Mikael Willgert og Lars Bern ræða meðal annars um róttækar og undarlegar breytingar á ESB. Þegar Svíþjóð gekk með í Evrópusambandið var það markaðssett sem leið til að tryggja frið og frelsi í Evrópu. En svo hefur ekki orðið raunin.
Kosningarnar um ESB voru atkvæði um frið. Í dag er ESB eitthvað allt annað. Núna förum við í stríð. Mikael Willgert segir:
„ESB var byggt á Kola- og stálsambandinu og það var sagt að ef við bara verslum hvert við annað, þá förum við ekki í stríð. En núna segir forysta ESB hið gagnstæða, að við eigum ekki að eiga viðskipti við Rússland.“
Að sögn Willgerts hefur ESB „gjörbreyst.“ Lars Bern segir:
„Við eigum að fara í stríð í staðinn. Athugið að Stálsambandið, sem síðar varð ESB, er verkefni sem er skipulagt af helstu efnahagshagsmunum á bak við hagkerfi Vesturlanda. Þráin eftir að ná stjórn á Rússlandi er enn það sem knýr það áfram bandalagið áfram.“
