Í þessum þætti Ísafoldar ræða þau Gústaf Skúlason og Íris Erlingsdóttir um málefni síðustu daga sem hafa verið viðburðaríkir. Davíð Oddsson besti sonur Íslands er fallinn frá. Með honum er stærsti leiðtogi sjálfstæðisbaráttu Íslands á eftir Jóni Sigurðssyni horfinn af braut. Með Davíð Oddssyni er fallinn einn merkasti stjórnmálaskörungur samtímans. Baráttumaður sem ætíð fylgdi kjörorðinu: „Gjör rétt, þol ei órétt.”
Íris Erlingsdóttir gerði úttekt á menntamálum á Íslandi með aðstoð gervigreindar og útkoman var ekki til að hrópa húrra fyrir. Stöðugt meira fé er varið í menntamálin en námsárangurinn er í öfugu hlutfalli. Núna er svo komið að Ísland er á botninum í les- og reiknikunnáttu barna þrátt fyrir að vera í hópi þeirra landa innan OECD sem eyða hvað mestu fé í hvern námsmann. Peningarnir virðast fara í mæðraveldið sem öllu ræður og hefur hreiðrað um sig en eyðir meira í sjálft sig en nemendur sem sitja á hakanum. Hér er mikið verk að vinna að koma málum í lag.
Frá Bessastöðum berast hneykslin, núna síðast þegar Björn Skúlason forsetamaki neitaði heiðursboði Melaníu Trump um að vera með í verkefni nu Eflum framtíðina saman, Fostering the Future Together, sem vinnur meðal annars að:
Forgangsröðun á persónulegum þroska barna
Sameiningarátaki varðandi börn, tækni og menntun
Samstarfi við einkageirann til að veita aðgang að nýstárlegri menntatækni, þar á meðal gervigreind og vélmennum
Miðlun lausna sem ná yfir kosti og áhættu gervigreindar
Hjónin á Bessastöðum hegða sér eins og barnalegir aðgerðarsinnar sem hafa Bandaríkin á hornum sér, þá sér í lagi forseta Bandaríkjanna Donald Trump.
