Í dag verður Davíð Oddsson fv. forsætisráðherra jarðsunginn í Hallgrímskirkju og hefst athöfnin klukkan 13.00. Séra Geir Waage jarðsyngur sinn fyrrum skólabróður og vopnabróður í stjórnmálunum. Með Morgunblaðinu í dag fylgir sérstakt aukablað helgað minningu Davíðs. Rita þar margir þjóðkunnir menn og konur og fólk sem staðið hefur nærri Davíð Oddssyni í farsælum störfum hans í þágu þjóðarinnar.
Haraldur Jóhannessen, ritstjóri Morgunblaðsins skrifar hinstu kveðju og lýsir Davíð Oddsyni sem miklum mannþekkjara sem sá gegnum innihaldslaust tal eða fals hraðar en aðrir menn sem hann hefur kynnst. Haraldur skrifar:
„Í öllum þeim störfum sem hér hafa verið nefnd og ég kynntist Davíð í með einum eða öðrum hætti er ljóst að hann gegndi lykilhlutverki og náði gríðarlegum árangri. Þegar horft er yfir þessi störf blasir við að enginn maður hefur unnið þjóðinni jafn vel og Davíð Oddsson á undanförnum áratugum og þó að lengra væri leitað. Langur og farsæll ferill hans er einfaldlega einstakur. En hann var líka einstakur maður að vinna með, ósérhlífinn og öflugur, skarpur og skemmtilegur, heill og traustur.”
Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus, skrifar í 12 köflum á sjö síðum í yfirlit yfir líf og störf Davíðs Oddssonar. Hannes og Davíð voru vinir frá menntaskólaárunum og hélst sú vinátta traust og góð út allt lífið. Er þar mikinn fróðleik að finna um þau miklu störf, starfsgleði, afköst og jákvæð áhrif á allt íslenska samfélagið Sem Davíð hafði fyrst í störfum sem borgarstjóri fyrir Reykvíkinga og síðar sem forsætisráðherra og Seðlabankastjóri og jafnframt ritstjóri Morgunblaðsins.
Hannes Hólmsteinn skrifar í lokaorðum yfirlitsins eftirfarandi:
„Mér reyndist Davíð hið besta. Bar aldrei skugga á vináttu okkar….
Þegar Davíð hvarf haustið 2004 úr forsætisráðuneytinu eftir nær fjórtán ár, var samkvæmt lífskjaravísitölu Sameinuðu þjóðanna best að búa á Íslandi í öllum heiminum. Það sýnir síðan eftirminnilega og afdráttarlaust, hversu vel heppnaðar umbætur Davíðs og samherja hans voru, að íslenska hagkerfið var ekki nema fjögur ár að ná sér eftir bankahrunið árið 2008. Í ljós kom, svo að ekki varð um efast, að það hvíldi á traustum stoðum. Samkvæmt lífskjaravísitölunni er enn best að búa á Íslandi í öllum heiminum.
Það er ekki lítill árangur.”
Þjóðólfur tekur undir þessi orð og hvetur alla sem geta að mæta við jarðaför Davíðs Oddssonar í Hallgrímskirkju í dag. Þeir sem geta það ekki geta fylgst með jarðaförinni í beinni á síðum mbl.is og ruv.is
Skjáskot af forsíðu aukablaðs Morgunblaðsins um Davíð Oddsson.