Ef við fetum í slóð ESB verða börnin okkar og barnabörnin fátæk

Hinn kunni fjölmiðlamaður Stefán Stefánsson leggur hér út nokkrar grundvallarstaðreyndir um stöðu helstu mála. Um Evrópusambandið segir hann eftirfarandi:

„Evrópa að verða fátækt ríki í samanburði við það sem gerist og gengur annars staðar á Vesturlöndum. Ef að við ætlum að feta þá slóð, þá verða börnin okkar og barnabörnin fátæk. Þá munu þau búa við skert lífsgæði miðað við það sem gerist annars staðar í heiminum. Það er ekki tilviljun að auðugustu ríki Evrópu standa utan Evrópusambandsins. Það eru Sviss og Noregur og Ísland.”