Gjör rétt – þol ei órétt – Stétt með stétt

Hin klassísku hvatningarorð sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar heyrðust í Hallgrímskirkju í dag, þegar Davíð Oddsson fyrrverandi forsætisráðherra var jarðsunginn. Séra Geir Waage, sóknarprestur emeritus, predikaði fagnaðarerindið samtímis sem hann fór yfir störf og líf Davíðs Oddssonar og velsignaði hann með blessun Guðs, föðurs, sonar og heilags anda. Að öllum öðrum kirkjunnar mönnum ólöstuðum, þá er Geir Waage sá fremsti til að gera gjörðum Davíðs skil á jafn vammlausan hátt og sannan.

Geir Waage átti erfitt að halda tárum frá kinn og þurfti nokkrum sinnum að þerra þau eins og margir viðstaddir og einnig fjarverandi sem fylgdust með í beinni útsendingu.

Það er ekki hægt einu sinni við jarðaför að gera ævi eins manns eins og Davíðs Oddssonar að fullu skil en Geir Waage tóks að skila sannri mynd af sál, anda og auðmýkt þess manns sem í áraraðir helgaði krafta sína þjóðinni og leiddi á farsælan hátt með einföldum og rammíslenskum reglum. Einmitt þær reglur og staðfesta Davíðs bjargaði þjóðinni á ögurstundu Icesave, sem fylgdi þeirri skoðun að heiðarlegt fólk ætti ekki að borga skuldir óreiðumanna. Davíð Oddsson var ekki sá sem var að hreykja sér heldur lét verkin tala. Andstæðingar hans þyrluðu upp miklu ryki, aðallega til að fela eigin afglöp og gerðu aðkast að Davíð. Með sögunni og tímans tönn mun slíkt gleymast en hinn góði Davíð Oddsson standa eftir betri en áður.

Á annan tug kransa með hinstu kveðju samstarfsmanna, vina og bandamanna prýddu Hallgrímskirkju og kistan var umleikin íslenska fánanum, sem Davíð helgaði allt sitt líf.
Karlakór Fóstbræðra söng sálma og ættjarðarlög, hluti þeirra sést hér á þessari mynd.

Heiðursmenn lögreglunnar báru út kistu Davíðs fram í anddyri kirkjunnar. Fyrir utan mynduðu lögreglumenn heiðursvörð til að sýna hinum látna virðingu sína.

Jarðaförin var virðuleg eins og hæfir þjóðarleiðtoga, kirkjan fullsetin og ættingjar og vinir á fremsta bekk.

Samstarfsmenn og vinir Davíðs allt frá skólaárum báru kistuna síðasta spölinn í bílinn sem flutti hann út í Fossvogskirkjugarð. Það voru þeir Haraldur Johannessen, ritstjóri Morgunblaðsins, Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, Þórarinn Eldjárn rithöfundur, Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, Eiríkur Jónsson læknir, Þórólfur Gíslason, kaupfélagsstjóri Kaupfélags Skagfirðinga, Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra, Ólafur Börkur Þorvaldsson hæstaréttardómari, Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, athafnamaður og stjórnarmaður í Árvakri, útgáfufélagi Morgunblaðsins, og Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Samband ungra Sjálfstæðismanna mynduðu fánaborg til að votta Davíð virðingu sem var afskaplega falleg sjón og virðuleg og kveikir vonir um að minningin um Davíð muni lifa lengi. Sérstaklega sjálfstæðisstefnan sem hann var í forystu fyrir áratugum saman.

Þjóðólfur kveður Davíð Oddsson hinstu kveðju: Þakka þér þín góðu verk og ráð á raunastundu. Guð geymi þig og blessi sem og fjölskyldu þína.

Mynd af aukablaði Morgunblaðsins um störf Davíð Oddssonar í dag.

(Myndir eru skjáskot frá opinberri útsendingu RÚV í beinni).