Þorgerður Katrín í félagsskap „ÉG ER RÍKIД herrunum
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra hefur skaðað hagsmuni Íslands. Ekki einungis með bókun 35 um að innleiða ESB-lög æðri íslenskum sem er harkalegt brot á stjórnarskrá Íslendinga, heldur með ferðum sínum og undirförlu ráðabruggi með framkvæmdastjórn Evrópusambandsins sem er orðið beint fjandsamlegt Bandaríkjamönnum. Er þá ekki einungis verið að ræða um Trump-heilkennið, það er að segja það graftarkýli sem slagar vinstri menn á Íslandi eins og Davíð-heilkennið forðum að ekki má nefna viðkomandi að nafni, heldur er um grundvallarágreining um málfrelsi og lýðræði að ræða. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er notuð af ESB til að egna íslenskri þjóð gegn besta bandamanni sínum og er hún að eyðileggja það góða samband sem þjóðirnar tvær, Bandaríkin og Ísland, hafa ræktað með sér gegnum árin.
Bæði utanríkisráðherrann og forsætisráðherrann hafa báðar gengið framkvæmdastjórn ESB á hönd. Þær starfa fyrir hana og skila skýrslum til hennar um áætlun ESB að taka Ísland með góðu eða illu inn í sambandið. Hluti stækkunarstefnu ESB er heimsvaldastefna í stíl gamalla nýlenduvelda og ESB hefur skilgreint Bandaríkin sem óvin sinn sem hindra þarf frá áhrifum á Norðurslóðum. Deilurnar um Grænland má skilja í ljósi Úkraínustríðsins en ESB þvertekur fyrir að semja um frið við Rússland. Framkvæmdastjórn ESB þvælist fyrir Trump sem reynir að finna leiðir til að stöðva manndrápin og ber við sig Rússagrýlunni.
Þá er ekkert skrýtið að Bandaríkjaforseti láti reyna á þá sömu Rússagrýlu á Grænlandi sem Danir hafa gjörsamlega hunsað í langan tíma. Að dönskum hermönnum hafi verið gefin skipun um að skjóta besta bandamann sinn, Bandaríkjamenn, ef þeir stigu fæti á Grænland, er með eindæmum og sýnir fláræðið í „vináttu” dönsku ríkisstjórnarinnar og ESB við Bandaríkin.
Bandaríkjamenn hafa skorið upp herör gegn því volæðisvóki sem allt var að kaffæra, vinstra bulli um hundruð kynja, fasískri ritskoðun og borguðum atvinnumótmælendum af George Soros og kínverskum kommúnistum. Bandaríkjastjórn er lýðræðislegt svar Bandaríkjamanna við allri þessari dellu sem var að tæma burtu sjálfstæðisanda Bandaríkjanna, lýðræði og stjórnarskrárbundið málfrelsi. Bandaríkjaþing hefur til umfjöllunar ritskoðun ESB sem bendir til endurkomu fasismans og ógnarstjórnar. Ursula von der Leyen boðar gjörbreytta heimsmynd og nýtt hlutverk ESB sem bara getur þýtt endanlega eyðileggingu aðildarríkjanna með afnámi lýðræðisins.
Í þessari vegferð festir framkvæmdastjórnin augu á að innlima Ísland sem fyrst. Áætlunin um tíma og framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslunnar þann 29. ágúst næst komandi er samin í Brussel. Ekki í Reykjavík. Allt sem ríkisstjórn Íslands gerir varðandi inngöngu Íslands í ESB er einungis framkvæmd áætlunar framkvæmdastjórnar ESB. Bæði forsætisráðherrann en sérstaklega utanríkisráðherrann hafa svikið – ekki bara loforð gefin fyrir kosningar til kjósenda, heldur störf sín í opinberum embættum fyrir Ísland. Þær hafa frásagt sér völdum sínum í leynimakki með ESB og vinna núna að yfirtöku ESB á Íslandi hörðum höndum.
Það er þess vegna ekkert skrýtið að utanríkisráðherra Íslands gangi illa að ná tali af kollegum sínum í Washington. Bandaríkjastjórn er fyrir löngu búin að sjá gegnum stöllurnar, bæði í ríkisstjórn og á Bessastöðum.
Það er þjóðþrifamál að moka flórinn í stjórnkerfinu og koma þessu fólki frá völdum eins fljótt og auðið er, áður en valkyrjurnar verða búnar að méla þjóðina í spað fyrir yfirmenn sína á meginlandinu.
