Blessuð sé minning þín Davíð Oddsson
Besti sonur Íslands er fallinn. Með honum er stærsti leiðtogi sjálfstæðisbaráttu Íslands á eftir Jóni Sigurðssyni horfinn af braut. Þjóðin á margt þessum góða dreng að þakka sem svo farsællega leiddi hana í baráttunni gegn innlendum sem erlendum fjárglæpamönnum í Icesave deilunni. Margir muna eftir deilum „Jóns við Davíð” en fleiri muna eftir baráttu „Davíðs við Golíat” þegar þjóðin sigraði ósvífin innlend sem erlend öfl sem reyndu að knésetja Ísland siðferðilega og efnahagslega. Davíð lagði til dómstólaleiðina sem þjóðin valdi og færði henni sigur í deilu, þar sem ESB skipaði sér á fremsta bekk meðal andstæðinga Íslands.
Á tíma Davíðs sem forsætisráðherra Íslands 1991 – 2004 hófst eitt mesta framfaratímabil í sögu þjóðarinnar sem lagði grunnin að þeirri velsæld sem þjóðin hefur notið síðar. Einstakir leiðtogahæfileikar Davíðs Oddssonar skipuðu honum ætíð í fremstu röð eins og sjá má á stjórnmálaferli hans allt frá farsælum störfum sem borgarstjóri Reykjavíkur, síðar sem formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra og eftir það sem bankastjóri Seðlabanka Íslands.
Vinstri mönnum tókst með stjórnarskrárbroti og fleiri valdníðsluaðgerðum að hrekja Davíð Oddsson úr störfum Seðlabankans en þar stóð Davíð vaktina fyrir þjóðarbúið eftir hrun bankakerfisins 2008. Þjóðin getur þakkað Davíð fyrir það að krítarkort landsmanna virkuðu áfram þrátt fyrir lokun alþjóða efnahagskerfisins á Ísland. Landsmenn gátu áfram keypt eldsneyti og lyf vegna snarræðis Davíðs Oddssonar. Þetta vita ekki allir enda reynt að yfirgnæfa staðreyndirnar með öskrum vinstri manna sem helst vildu sjá Davíð allan í sínu botnlausa hatri og öfundsýki gagnvart svo farsælum leiðtoga þjóðarinnar.
Síðustu árin var Davíð Oddsson ritstjóri Morgunblaðsins og stóð ætíð í leiðurum og Reykjavíkurbréfum vörð um þjóðarhag og sjálfstæði landsmanna.

Med Davíð Oddssyni er fallinn einn merkasti stjórnmálaskörungur samtímans. Baráttumaður í anda Jóns Sigurðssonar sem ætíð fylgdi kjörorðinu: „Gjör rétt, þol ei órétt.”
Guð blessi Davíð Oddsson og fjölskyldu hans og þjóðina á sorgarstund.
Þakka þér fyrir allt, kæri vinur. Hvíl í friði.
Gústaf Adolf Skúlason
