Forseti Bandaríkjanna, Donald Trump, ávarpaði þjóðina á sunnudag og lýsti umfangsmikilli hernaðaraðgerð gegn Iran sem hann sagði marka tímamót í átökum ríkjanna. Aðgerðin, sem ber heitið Söguleg reiði, Operation Epic Fury, hefur samkvæmt forsetanum þegar kostað tugi æðstu leiðtoga Írans lífið, þar á meðal æðsta leiðtoga landsins.
Í ávarpinu sagði Trump að aðgerðin væri „ein sú stærsta, flóknasta og yfirþyrmandi hernaðaraðgerð sem heimurinn hefur nokkru sinni séð“. Hann greindi frá því að á síðustu 36 klukkustundum hefðu Bandaríkin og bandamenn þeirra ráðist á hundruð skotmarka í Íran, þar á meðal bækistöðvar Byltingarvarðarins og loftvarnarkerfi landsins. Bardagaaðgerðir stæðu enn yfir af fullum þunga og myndu halda áfram þar til öllum markmiðum hefði verið náð.
Trump tilkynnti jafnframt að níu írönskum herskipum hefði verið sökkt og höfuðstöðvar íranska flotans eyðilagðar „á örfáum mínútum.“ Þá lýsti hann því yfir að fyrrverandi æðsti leiðtogi Írans, Ayatollah Khamenei, væri látinn. Hann sakaði hann um að bera ábyrgð á dauða hundruða eða þúsunda Bandaríkjamanna og fjölda saklausra borgara víða um heim.
Hörð skilaboð og hótanir
Forsetinn sendi írönskum hersveitum skýr skilaboð og hvatti þær til að leggja niður vopn og „fá fulla friðhelgi eða mæta öruggum dauða“. Hann bætti við:
„Það verður öruggur dauði. Það verður ekki fallegt. Bandaríkin hafa öflugasta her sem heimurinn hefur nokkru sinni séð og við munum beita honum til að tryggja öryggi Bandaríkjanna og bandamanna okkar, þar á meðal Israel.“
Í ávarpinu kom einnig fram að þrír bandarískir hermenn hefðu fallið í aðgerðinni, samkvæmt upplýsingum frá United States Central Command (CENTCOM). Trump sagðist syrgja „sanna bandaríska föðurlandsvini sem færðu hina æðstu fórn“ og viðurkenndi að líklegt væri að fleiri mannföll yrðu áður en átökunum lyki, þó allt yrði gert til að lágmarka slíkt.
Kallar eftir uppreisn írönsku þjóðarinnar
Trump beindi einnig orðum sínum til írönsku þjóðarinna:
„Grípið þetta augnablik, verið hugrökk, djörf og hetjuleg og endurheimtið landið ykkar. Bandaríkin standa með ykkur, ég hef lofað því og efni það loforð. Eftirleikurinn verður undir ykkur kominn en við verðum til staðar til aðstoðar.“
Í ræðu sinni rökstuddi hann að aðgerðin væri nauðsynleg til að koma í veg fyrir að íranska stjórnin, sem hann kallaði helsta ríkisstuðningsaðila hryðjuverka í heiminum, fengi yfirráð yfir langdrægum eldflaugum og kjarnavopnum. Slík þróun væri bein ógn við Bandaríkin og alþjóðlegt öryggi.
Sjá ávarp Bandaríkjaforseta hér að neðan:
