Jón Magnússon hæstaréttarlögmaður skrifar harðorða gagnrýni á fréttaflutning RÚV um átökin sem tengjast Íran. Heldur hann því fram að ríkisfjölmiðillinn sýni einhliða afstöðu og fordæmi aðgerðir Ísraels og Bandaríkjanna gegn írönsku klerkastjórninni án þess að nefna fyrri ódæðisverk hennar og mannréttindabrot.
Jón Magnússon skrifar:
„Á meðan sumar fréttastofur sýna fólk í Theheran sem er að fagna af því það vonast til að losna við ógnarstjórnina þá fordæmir RÚV árásina og telur hana stríðsglæp.”
Jón bendir réttilega á að íranska klerkastjórnin hafi áður beitt mótmælendur miskunnarlausu ofbeldi, skotið á fólk í Teheran og öðrum borgum og myrt 40 þúsund almennra borgara fyrir þann glæp einan að krefjast frelsis. Hann skrifar:
„Þeir fjarlægðu leg kvenna sem höfðu mótmælt. Dældu eiturefnum í fanga og drápu særða mótmælendur á spítölum og kröfðu ástvini fólksins um miklar fjárhæðir til að þeir gætu fengið líkin og jarðað þau með viðhöfn. RÚV sagði ekki frá þessum viðbjóði eða gaf þeim hryllingi eðlilegt rými í dagskrá sinni. Þeirra skömm.”
Sakar klerkastjórnina um alþjóðlega hryðjuverkastarfsemi
Jón Magnússon vísar til þess að stjórnin í Teheran hafi stutt og fjármagnað samtök á borð við Hesbollah, Hamas og Húta með það að markmiði að grafa undan öryggi Ísraels. Hann skrifar að írönsk stjórnvöld hafi staðið að aðgerðum gegn andstæðingum sínum erlendis, meðal annars í London og París og vísar til þess að allt að 20 hryðjuverkahópar séu í Bretlandi á vegum þursanna í Teheran. Þeir gáfu út dauðadóm yfir rithöfundinum Salman Rushdie og prédikuðu frá byrjun gjöreyðingarstríð gegn Ísrael og Bandaríkjunum.
Krefst skýrari afstöðu stjórnvalda
Hæstaréttarlögmaðurinn beinir einni hvassri gagnrýni að íslenskum stjórnvöldum og sérstaklega utanríkisráðherra, Þorgerði Katrín Gunnarsdóttir. Jón skrifar:
Þorgerður Katrín segist berjast fyrir frelsi Úkraínu en segir það brot á alþjóðalögum að berjast fyrir frelsi Írans (samsett mynd).
„Íslensk stjórnvöld hefðu átt að fagna því að reynt væri að koma þursaveldisstjórninni frá. Þorgerður Katrín veit greinilega ekki í hvorn fótinn hún á að stíga hvort hún á að standa með undanlátsfólkinu í ESB eða berjast fyrir frelsi fólksins í Íran. Já og losa heimsbyggðina við ríkisstjórn sem stundar glæpastarfsemi og skipuleggur hryðjuverk um allan heim.
Fréttastofa RÚV tekur afstöðu með ógnar- og hryðjuverkastjórn, sem myrðir eigin borgara tugþúsundum saman. Það er til skammar fyrir lýðræðisríkið Ísland að reka slíka fréttastofu og andstætt lögum sem gilda um RÚV. Þjóðin hefur ekkert við pólitíska áróðursstofnun sem heitir RÚV að gera.
Stöndum með frelsi fólksins í Íran. Vonandi tekst að koma ógnarstjórninni í Íran frá núna.”
Þjóðólfur tekur undir orð hæstaréttarlögmannsins. Eftir að Jón skrifaði þessa færsla hefur komið í ljós að meirihluti böðlastjórnarinnar í Íran hefur týnt lífi í hernaðaraðgerð Bandaríkjanna og Ísraels.
Fólk fagnar um allan heim. Vindar frelsis blása og gefa milljónum manna von um betra líf.