Aðgerðarsinnarnir á Bessastöðum nýta embætti forseta Íslands gegn Bandaríkjunum

Ekki virðast nein takmörk fyrir því hversu lágt forsetahjónin á Bessastöðum eru reiðubúin að leggjast í vókaðri aðgerðastefnu og árásum gegn Bandaríkjastjórn og þá sérstaklega forseta Bandaríkjanna Donald Trump. Halla Tómasdóttir dreifir lygum spældra vinstrimanna gegn Donald Trump vegna þess að Bandaríkjastjórn segir sannleikanum um að kynin séu bara tvö: Karl og Kona. Núna er það nýjasta að forsetamakinn Björn Skúlason afþakkaði heiðursboð Melania Trump um átak fyrir eflingu persónulegs þroska barna í stafrænum heimi.

Björn og Halla elta ESB og valkyrjurnar sem vilja áframhaldandi stríð í Úkraínu til síðasta manns og líta á Bandaríkin sem óvin sinn, vegna þess að Trump talar við Pútín. Hið vókaða ESB-lið segist vera að vinna fyrir friðinn en það eina sem þau gera er að tala hvert við annað og seilast sífellt dýpra ofan í vasa skattgreiðenda.

First Lady Melania Trump heimsótti Barnastofu heilbrigðisyfirvalda 11. febrúar 2026 í Bethesda, Maryland. (Mynd Hvíta húsið © Andrea Hanks).

Styðja forsetahjónin frekar limlestingu barna til kynskipta en að forgangsraða persónulegum þroska þeirra?

Spyrja má hvað forsetahjónin hafi á móti verkefni Melania Trump, Eflum framtíðina saman, Fostering the Future Together, sem vinnur meðal annars að:

  • Forgangsröðun á persónulegum þroska barna
  • Sameiningarátaki varðandi börn, tækni og menntun
  • Samstarfi við einkageirann til að veita aðgang að nýstárlegri menntatækni, þar á meðal gervigreind og vélmennum
  • Miðlun lausna sem ná yfir kosti og áhættu gervigreindar

Eflum framtíðina saman verður innleitt af þátttakendum á staðnum, innan viðkomandi lands sem Ísland mun nú missa af vegna barnaskapar aðgerðasinnanna á Bessastöðum. Frú Trump mun halda fyrsta fund Eflum framtíðina saman í Hvíta húsinu á fyrsta ársfjórðungi 2026.

Hér er meme grín sem Íris Erlingsdóttir, fjölmiðlafræðingur, hefur gert. Til að sýna forgangsröðun íslenska forsetans er Halla látin halda á transfána á meðan sænski kóngurinn beygir sig niður eftir þeim íslenska sem forsetinn gat ekki haldið á. Til hægri forsetamakinn Björn Skúlason sem sýnir vók dónaskap með höfnun á heiðursboði Hvíta hússins.