Rafbílar missa allt að helming drægni í vetrarprófi

Nýtt vetrarpróf á endingu rafbíla sýnir að margir þeirra ráða illa við harðan norðankulda. Í sumum tilvikum hvarf allt að helmingur uppgefinnar vegalengdar þegar bílar voru prófaðir við mjög lágt hitastig.

Prófið, sem nefnist El Prix og er stærsta drægnipróf heims, fór fram í janúar. Ekið var frá höfuðborg Noregs, Oslo, og norður á bóginn. Upphaflega stóð til að 25 rafbílar tækju þátt en þeim fækkaði í 24 þegar Xpeng dró bílgerðina G9 úr keppni þar sem munnstykki fyrir rúðuvökva höfðu frosið.

Niðurstöðurnar þóttu sláandi, líkt og í fyrri prófum, en að þessu sinni voru frávikin meiri en áður. Níu af 24 bílum misstu 40% drægni eða meira miðað við opinberar tölur framleiðenda. Nils Sødal samskiptaráðgjafi hjá norsku bifreiðasamtökunum NAF segir:

„Við höfum aldrei áður séð meiri frávik frá opinberri drægni og aldrei hafa þau verið svona mikil hjá jafn mörgum bílum.“

Aflið dvín á endanum

Verst kom Lucid Air út sem tapaði tæplega 46% drægni. Minnst frávik mældist hjá Hyundai Inster, sem missti 29%.

Meðalfrávik frá uppgefinni drægni í ár var 38% samanborið við 18 prósent í fyrra. Þá fór prófið fram við hitastig á bilinu mínus sex til plús átta gráður, en í ár mældist frostið á bilinu mínus sjö og niður í mínus 32 gráður. Kuldatíðin virðist því hafa haft veruleg áhrif á afköst bílanna.

Ökumenn urðu einnig varir við skýra aflminnkun undir lok aksturs þrátt fyrir að rafhlaðan sýndi um tíu prósent hleðslu. Þegar afl tapaðist verulega voru bílarnir stöðvaðir af öryggisástæðum.

Að sögn Sødal hefur þurft að grípa til meiri öryggisráðstafana en áður í prófinu. Nístingskuldi og hætta á að bílar stöðvuðust á óheppilegum stöðum gerðu það að verkum að skipuleggjendur urðu að sýna aukna aðgát.

Niðurstöðurnar vekja spurningar um hversu vel rafbílar eru í stakk búnir til notkunar við krefjandi vetraraðstæður á Norðurlöndum. Þótt tækninni hafi fleygt fram bendir prófið til þess að verulegt bil geti verið á milli lofaðrar og raunverulegrar drægni þegar kuldinn bítur.

Tíu verstu bílamerkin (Lucid Air kom verst út í prófuninni):

Skástu bílamerkin (Hyundai Indster kom best út í prófuninni):