67% Svía treysta ekki á varnir Nató

Ný skoðanakönnun sýnir að Svíar treysta ekki Bandaríkjunum til að verja Svíþjóð eða önnur Nató-ríki ef til árásar kemur. Niðurstöðurnar staðfesta enn meiri vantraust á stríðsbandalagið – þrátt fyrir áralangan pólitískan áróður.

Svíþjóð hefur verið aðili að stríðsbandalaginu Nató í næstum tvö ár og hefur veitt Bandaríkjunum aðgang að 17 sænskum herstöðvum í gegnum varnarsamninginn. En ný könnun frá SVT/Verian sýnir að sænska þjóðin kaupir ekki söguna um öryggið.

Aðeins 26% telja að Bandaríkin myndu raunverulega koma til bjargar ef ráðist yrði á Nató-ríki innan tveggja ára. Svo mikið sem 67% bera lítið eða mjög lítið traust til Nató. Það þýðir að næstum sjö af hverjum tíu Svíum trúa ekki á þann grundvöll sem Nató byggir á – hina svo kölluðu sameiginlegu „varnarábyrgð.“

Konur eru enn skeptískari en karlar varðandi Nató. Aðeins 15% kvenna telja að Bandaríkin myndu veita hernaðaraðstoð ef raunveruleg krísa kæmi upp. Meðal karla er talan mun hærri eða 38% ​​sem treysta á Nató og langt í land með að almennt traust ríki. Minnst er traustið til Nató hjá vinstri mönnum, hærra hjá hægri mönnum.

Stjórnmálamenn í Svíþjóð tóku landið inn í Nató á leifturhraða án þess að eiga neitt samtal við þjóðina og núna kemur í ljós að aðildin hefur engan útbreiddan stuðning meðal almennings. Í staðinn sýnir könnunin, hversu vantraustið er útbreitt.

Sama sagan alls staðar á Vesturlöndum

Traustið á Nató minnkar einnig í öðrum löndum. Samkvæmt Gallup hefur traust á Bandaríkjunum minnkað í 21 af 32 Nató-ríkjum. Í Þýskalandi hefur traustið hrunið 39%. Að meðaltali treysta aðeins 21% íbúa aðildarríkja Nató Bandaríkjunum sem hernaðarsamstarfsaðila.

Nató er oft lýst sem „varnarsamstarfi“ – en í reynd byggist bandalagið á því að Bandaríkin grípi til aðgerða. Nýja könnunin sýnir að grundvöllur Nató er veikari en nokkru sinni fyrr.

Hversu lengi geta aðildarríkin reitt sig á hernaðarbandalag sem svona fáir trúa á?

Fara efst á síðu