UPPLJÓSTRUN: Veðurfarsstjórnun og nýir loftslagsskattar að tjaldabaki í Davos

Screenshot

Með því að nota falda myndavél afhjúpar James O’Keefe hvernig loftslagselítan í Davos ræðir um að stjórna veðrinu og lifa á nýjum loftslagssköttum ESB. Í samtölunum koma fram upplýsingar um gerviregn, sólarvörn og viðskiptamódel sem byggir á loftslagsstefnu ESB þar sem græða má peninga á því að „aðstoða“ fyrirtæki reglugerðarfrumskóginum.

James O’Keefe frá O’Keefe Media Group mætti dulbúinn með falda myndavél á Alþjóðaefnahagsráðstefnuna í Davos til að taka upp í leyni samtöl við áhrifamikla einstaklinga í loftslagsiðnaðinum. (sjá YouTube að neðan). Í upptökunum koma fram upplýsingar um veðurbreytingar, gerviregn og hvernig fyrirtæki græða á nýjum loftslagssköttum ESB.

Við lokum fyrir sólina

Einn viðmælandinn talar um hvernig þeir nota agnir í andrúmsloftinu til að draga úr sólargeislum. „Við notum úðabrúsasprautun í heiðhvolfið til að loka fyrir sólina“ segir maðurinn. Hann lýsir því hvernig aðgerðin er framkvæmd án gagnsæis, með því að nota skálduð fyrirtæki, nafnspjöld og vefsíður. Allt til að forðast athygli almennings. Aðferðin er oft kölluð jarðverkfræði, en í upptökunum kemur fram að vísvitandi sé forðast að nota hugtakið „efnaúðun“ (chemtrails). Annar þátttakandi segir í samtali við O’Keefe:

„Við segjum ekki „efnaúðun“ það hljómar eins og samsæri. Við segjum úðabrúsasprautun (aerosolinjekton).“

Regn samkvæmt pöntunum

Annar einstaklingur talar um hvernig hægt er að nota tæknina til að búa til gerviregn. Hann fullyrðir að þetta sé gert með því að dreifa ögnum í andrúmsloftið, sem síðan valda því að vatnsgufa myndar regndropa. „Þetta er eins og lítið eldgos“ segir hann. Samkvæmt honum eru mörg slík verkefni þegar í gangi í samstarfi við bandarísk yfirvöld, þar á meðal rannsóknardeild bandaríska varnarmálaráðuneytisins, DARPA.

Ný viðskiptahugmynd: Loftslagsskattar ESB

Sarah Lemniei, forstjóri SLK Capital, segir að fyrirtæki hennar hjálpi viðskiptavinum að meðhöndla nýja loftslagsskatta Evrópusambandsins, CBAM. Þessi skattur gildir um innflutning til ESB og er vegna loftslagsfótspors fyrirtækja. Lemniei segir:

„Við hjálpum fyrirtækjum að breyta viðskiptamódeli sínu þannig að koltvísýringsskattur þeirra verði lægri. Í lokin snýst þetta um að geta flutt meira út til Evrópu.“

Hún segir einnig frá því að þau séu að vinna með bönkum að því að búa til nýja fjárfestingarpakka sem tengjast aðgerðum í loftslagsmálum. Hún segir:

„Við erum að vinna með þróunaraðilum og bönkum að því að skipuleggja fjárfestingarleiðir.“

Með BlackRock að bakhjarli

Á hliðarfundi í Davos ávarpar frumkvöðullinn Balbir Singh áhorfendur. Hann segir: „Við höfum BlackRock á bak við okkur.“ Yfirlýsingin kemur á fundi sem nokkrir helstu aðilar úr tækni- og fjármálageiranum sóttu, þar á meðal Palantir og Accenture.

Það sem O’Keefe komst að bendir til þess að mörkin milli loftslagsstefnu og viðskiptahagsmuna séu vægast sagt óljós. Umræðurnar í Davos sýna að stór einkafyrirtæki og fjármálahópar eru á kafi í hönnun loftslagsstefnu. Áhrif veðurfars eru lýst sem verkfæri en ekki framtíðarsýn. Og litið er á nýjar skattareglur eins og CBAM sem viðskiptatækifæri til eigin hagnaðar.

Það vekur upp spurningar um gagnsæi og sjálfsákvörðunarrétt þjóða. Hvað gerist þegar alþjóðleg verkefni og tæknilegar lausnir eru eru teknar fram án opinberrar umræðu? Og hvaða afleiðingar getur það haft ef veðrið verður enn eitt verkfærið í höndum þessara einkaaðila? Engin svör eru við þeim spurningum í myndskeiðinu sem sýnir að margar af mikilvægustu ákvörðunum samtímans um loftslagsmál, efnahagsmál og tækni eru núna teknar langt fjarri sjónum almennings.

Fara efst á síðu