Telegraph greinir frá því að spænska ríkisstjórnin hefur með tilskipun veitt allt að 500.000 manns án löglegs réttar til dvalar í landinu – löglega stöðu frá og með apríl. Í reynd verðlaunar ákvörðunin ólöglega innflytjendur og sendir þau skilaboð til allra sem koma ólöglega inn í ESB að ef þeir dvelja nógu lengi þá fá þeir dvalarleyfi. Samtímis eru dyrnar opnar að frjálsri för innan ESB, sem virkar sem hvati fyrir fleiri ólöglega innflytjendur að flykkjast inn í ESB á sama tíma og mörg ESB-ríki minnka eða neita að taka við fleirum innflytjendum.
Samsteypustjórn Spánar undir forystu sósíalista hefur nýlega samþykkt tilskipun sem mun veita allt að hálfri milljón manns sakaruppgjöf sem dveljast án löglegs réttar í landinu. Sagt er að ákvörðunin muni gagnast Spáni í heild en áhrifin munu ná langt út fyrir landamæri landsins. Elma Saiz, innflytjendaráðherra Spánar, segir aðgerðina „efla innflytjendamódel mannréttinda, inngildingar og hagvaxtar.“ Samstarfsflokkur sósíaldemókrata, Podemos, segir að markmiðið með sakaruppgjöfinni sé að vinna gegn „stofnanarasisma sem fæðir misnotkun og rasískt hatur.“
Santiago Abascal, leiðtogi Vox, gagnrýndi Pedro Sánchez, forsætisráðherra harðlega:
„Hann ætlar að flýta fyrir innrásinni. Við verðum að stöðva hann. Heimsendingar, brottvísanir og endurflutningar.“
Í gegnum árin hefur straumur ólöglegra innflytjenda komið á bátum frá Afríku til Spána. Með sakaruppgjöfinni munu innflytjendur sem hafa verið ólöglega í landinu í að minnsta kosti fimm mánuði samtímis fá löglega stöðu á Spáni og fullan aðgang að frjálsri för innan ESB.
Verið að staðla ólöglegan innflutning
Þetta er engar „mannúðarumbætur“ heldur pólitísk ákvörðun til að gera ólöglegan innflutning „hælisleitenda“ að nýjum staðli innan ESB. Verið er að senda þau skilaboð að ef þú kemur ólöglega og dvelur nógu lengi, þá mun ríkið fyrr eða síðar stimpla pappírana þína. Spánn er að eyðileggja sitt eigið land og það mun hafa afleiðingar fyrir allt ESB og einnig Ísland með galopin landamæri.
Tvískinnungur Evrópusambandsins
Þegar spænska stjórnarandstaðan hefur reynt að taka málið upp á vettvangi ESB hafa skilaboðin frá Brussel verið að það sé „í höndum aðildarríkisins sjálfs að ákveða lögleiðingu ólöglegra innflytjenda.“ Þetta má bera saman við afstöðu ESB til Ungverjalands sem neitar að taka við kvótaflóttamönnum og hefur fengið á sig gríðarlega efnahagsrefsingu ESB-dómstólsins.
Þegar Ungverjaland stöðvar innstreymi innflytjenda og verndar eigin landamæri þá fer ESB af stað og fordæmir landið, tekur upp málaferli og refsar með himinháum sektum. Þegar Spánn umbunar ólöglegum innflytjendum með fjöldauppgjöf, þá er það allt í einu „málefni þjóðarinnar“ og ekkert athugavert við það.
ESB hefur byggt upp viðbragðsvarnir til að berjast gegn „hugmyndafræðilegum frávikum“ – allt má kalla „öfgahyggju“ þegar það hentar en ekkert er gert gagnvart innflytjendaöfgahyggju sem brýtur niður samfélög og rýrir traust.
